Hey- og jarðvegssýnataka
Á faglegum nótum 18. september 2026

Hey- og jarðvegssýnataka

Höfundur: Hafrún H. Hlinadóttir
Hafrún H. Hlinadóttir.

Núna er haustið farið af stað og bændur á fullu að klára heyskap ársins og farnir að sækja fé á fjöll. RML tekur nú við pöntunum á hey- og jarðvegssýnum fyrir haustið og hvetur bændur til að skoða stöðu heyja og jarðvegs eftir sumarið.

Efnainnihald heyja ræðst að mestu af áburðarefnum, veðurfari og sláttutíma og getur því verið breytilegt milli ára og svæða. Veðurfar sumarsins hefur verið nokkuð breytilegt milli landshluta, þar sem víða hefur verið nokkuð kalt og vætusamt á sunnan- og vestanverðu landinu en hlýrra og þurrara norðan- og austanlands. Því má búast við að gæði og efnainnihald heyja séu breytileg milli landshluta, sérstaklega þegar horft er til seinni sláttar. Til að vera vel upplýstur um stöðu fóðurs og jarðvegsins sem bændur eru með í höndunum og hvernig best er að nýta niðurstöðurnar til að hámarka uppskeru og nýtingu hennar er mikilvægt að taka reglulega sýni.

Heysýni gefa okkur yfirlit yfir efnainnihald og gæði heyja ársins og nýtast bæði í fóður- og áburðaráætlunargerð. Best er að taka nokkur sýni úr ólíkum spildum til að fá niðurstöður sem endurspegla heyforða vetrarins. Einnig er hægt að taka safnsýni af spildum sem eru í svipaðri ræktun og með svipaðan slátturtíma til að fá upplýsingar sem endurspegla stærri hluta fóðursins. Mikilvægt er að hafa í huga að ef tekið er verkað heysýni þá þarf gróffóðrið að vera búið að verkast í 4-6 vikur áður en sýnið er tekið.

Jarðvegssýni veita mikilvægar upplýsingar um sýrustig jarðvegs og birgðir hans af mikilvægustu plöntunæringarefnum. Með því að taka jarðvegssýni úr sömu spildum á nokkurra ára fresti er hægt að fylgjast með breytingum á sýrustigi og næringarefnastöðu jarðvegsins milli ára og hvort ástæða sé til að breyta áburðargjöf eða kalka spilduna.

Ef stefnt er á endurræktun gefa jarðvegssýni mikilvægar upplýsingar um hvaða gróðri jarðvegurinn hentar og til hvaða ef það á að fara í endurræktun. Æskilegt er að taka jarðvegssýni áður en búfjáráburður er borinn á og áður en það fer að frjósa í jörð.

Hægt er að panta hey- og jarðvegssýnatöku á heimasíðu RML eða hafa samband í gegnum síma. Við hvetjum bændur til að panta tímanlega til að hægt sé að skipuleggja sýnatökudagana. Ef vakna einhverjar spurningar er um aðgerða er hægt að grípa til að reyna að auka lifun sáðgresis í jarðveginum. Niðurstöður jarðvegssýna frá undanförnum árum benda til þess að sýrustig túna sé mjög víða lægra en þau viðmiðunargildi sem æskileg þykja í jarðrækt og því mikilvægt að vera með þær upplýsingar við hendina að gera að hafa samband við RML fyrir nánari upplýsingar.

Höfundur er ráðunautur á rekstrar- og umhverfssviði RML.

Skylt efni: RML

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f