Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í skotfærum er liðinn og hún tekur því senn gildi. Löggjöfin tók talsverðum breytingum í umsagnarferli.

Lykilbreytingar sem gerðar voru eru að aðlögunartími er lengdur í sjö ár og bannið tekur aðeins til blýhagla. Ástæður hertrar löggjafar eru af náttúru- og dýraverndarástæðum en staða varnarmála hefur áhrif á breytingar frá upphaflegri tillögu.

Blýhögl bönnuð

Löggjöfin tekur gildi 20 dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins, en lokameðferð í Evrópuþinginu lauk 8. október. Hún hefur enn ekki verið birt.

Helstu breytingar sem gerðar voru eftir að hún var fyrst lögð fram eru að aðlögunartími var lengdur úr þremur árum í sjö fyrir notkun blýhagla, sem verða bönnuð. Að þeim tíma loknum verður óheimilt að selja haglaskot sem innihalda 1% eða meira af blýi til veiða. Blýkúlur í riffilskot eru ekki hluti nýrra laga eins og í upphaflegri tillögu.

Bann við notkun blýhagla í og við votlendi hefur verið í gildi frá árinu 2023. Nýja löggjöfin tekur til almenns banns við notkun þeirra og leysir eldri löggjöfina því af hólmi.

Staða varnarmála hefur áhrif

Hvatinn að lagabreytingunum kemur frá Evrópsku efnastofnuninni (ECHA) sem Ísland er aðili að.

Ekki verður af banni við blýkúlum í riffilskot, sem notuð eru til veiða á stærri bráð, eins og upphaflega var ritað um í drögum að nýrri löggjöf. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins færir þau rök fyrir breytingunni að nauðsyn sé að viðhalda framleiðslu- og birgðagetu á grundvelli breytinga í öryggis- og varnarmálum Evrópu.

Meðlimir Evrópusamtaka skotveiðifélaga (FACE) tóku virkan þátt í umsagnarferli lagasetningarinnar. Skotveiðifélag Íslands (SKOTVÍS) á aðild að samtökunum.

Skylt efni: skotveiði

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...