Djúpavíkurbúðin litla er umvafin fögru umhverfi.
Djúpavíkurbúðin litla er umvafin fögru umhverfi.
Mynd / khk
Líf og starf 3. nóvember 2026

Herdís Kolka stendur vaktina

Höfundur: Kristín Heiða Kristinsdóttir

– Þriðja kynslóð Djúpavíkurbúðarinnar

Herdís Kolka dugnaðarforkur selur ferðamönnum ámálaða steina.

Ein er sú búð á landi hér sem er flestum búðum smærri, það er Djúpavíkurbúðin í Reykjarfirði á Ströndum, en hún rúmast inni í litlum skúr sem er rétt rúmur fermetri að stærð. Fyrir innan afgreiðslulúgu stendur keik stúlka og selur steina með ámáluðum alls konar litríkum myndum. Sumir steinarnir eru fígúrur, aðrir skarta íslenska fánanum, fjöllum, blómum, áletrunum eða einhverju öðru.

„Ég mála sjálf á alla þessa steina og það gengur bara vel að selja, enda verða ferðamenn bæði hissa og glaðir að rekast á mig og litlu búðina mína hér í sveitinni,“ segir hin ellefu ára Herdís Kolka Héðinsdóttir, sem á heima í Kópavoginum en dvelur á sumrin og í öllum sínum fríum með pabba sínum í litla þorpinu Djúpavík, þar sem hann starfar við ferðaþjónustuna. Í Djúpavík búa amma og afi Herdísar Kolku, þau Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn Þorgilsson, en þau stofnuðu og eiga Hótel Djúpavík, sem pabbi Herdísar og mágur hans reka í dag.

„Amma og afi fluttu hingað fyrir fjörutíu árum, svo pabbi minn ólst upp hér, en ég er sú sem dvel lengst hér yfir sumarið af barnabörnum ömmu og afa. Systkini mín komu til dæmis bara í heimsókn hingað í sumar, en þar til núna hefur bróðir minn reyndar líka verið hér á sumrin. Við fjölskyldan höfum verið að mála á steina frá því ég var pínulítil stelpa og þetta er þriðja kynslóð Djúpavíkurbúðar hjá okkur fjölskyldunni. Systkini mín voru með búðina fyrst og á undan þessari búð sem er núna, þá var ég með aðeins minni búð, alveg frá því ég var fimm ára. Ég er flesta daga að afgreiða í búðinni, en samt bara þegar ég nenni, því ég er líka að hjálpa til á hótelinu, afgreiða og rétta fólki kökur,“ segir Herdís Kolka, sem hefur skrifað skýr skilaboð á rúðu við hlið afgreiðslulúgunnar, bæði á íslensku og ensku, um að bannað sé að koma inn í búðina og bannað að mála á gluggana. Þegar Herdís Kolka er spurð að því hvað henni finnist best við að verja sumrinu í Djúpavík, er hún fljót til svars: „Að sigla út á haf á báti, fara á fjórhjólið, mála á steina og selja. Þetta er allt mjög gaman og mér finnst mikið frelsi að vera hér í sveitinni.“

Skylt efni: Djúpavík

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...