Hátíðahöld og skemmtanir næstu vikurnar
Líf og starf 24. júní 2026

Hátíðahöld og skemmtanir næstu vikurnar

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið en í næstu blöðum birtist yfirlit yfir helstu skemmtanir og húllumhæ ... Hér má sjá brot af því sem er á döfinni næstu tvær vikurnar,  þó næsta víst sé að ekki komist allt á lista.

Júní

25. júní Hvalasafnið á Húsavík

Hin árlega hvalaráðstefna Hvalasafnsins fer fram þann 25. júní á Stéttinni og nú hefur dagskráin litið dagsins ljós. Fjöldi fróðlegra erinda sem verður gaman að heyra. Að þessu sinni er ráðstefnan unnin í samstarfi við aðra ráðstefnu sem nefnist Whales and Humans.

25.–27. júní Brákarhátíð

Hin sívinsæla sumarhátíð Borgarness, Brákarhátíðin, verður haldin hátíðleg og mikið um að vera að venju.

VÆB á sviði.

26.–27. júní Jónsmessan á Eyrarbakka

Mikil fjölskylduskemmtun verður haldin á Eyrarbakka. Á föstudeginum verður m.a. Jónsmessubolti/kíló kl. 16.45 bak við Húsið, pylsur og drykkir í boði að lokinni keppni. fjölskyldubingó kl. 19 í Samkomuhúsinu Stað, Bifreiðaklúbbur Suðurlands keyrir í gegnum þorpið í miklu stuði kl. 20 og lýkur deginum með Kahoot í Rauða húsinu kl. 22. Á laugardagsmorgun býður Skógræktarfélag Eyrarbakka til morgunverðar í Hallskoti og um hádegi, kl. 12 verður setning Jónsmessu í Sjóminjasafninu, Túngötu 59 og Brúðubíllinn mætir á svæðið. Á milli kl. 13–15 verða mikil hátíðahöld við Garðstún, Fangaverk frá Litla-Hrauni verða með markað á Kirkjutorgi, kl 13:30 býður Rauða húsið upp á kjötsúpu fyrir þá sem koma með eigið ílát og í kjölfarið verða opin hús á svæðinu fram eftir degi. Deginum lýkur með Jónsmessuballi í Rauða húsinu á laugardagskvöldið þar sem hljómsveitin Moskvít og Grétar Lárus Matthíasson halda uppi stuði. Opið fram á rauða nótt og stemming eftir því! Aldurstakmark 20 ára, miðaverð 2.500 kr. ps. Frítt að veiða í Ölfusárósi fyrir landi Eyrarbakka dagana 26.–28. júní 2026.

Rabarbarahátíð verður haldin á Blönduósi.

27. júní Rabarbarahátíð á Blönduósi

Í gamla bænum á Blönduósi verður haldin hátíð sem einkennist af fjölskylduvænni stemningu og líflegri þátttöku gesta ... en yfir daginn verður m.a. boðið upp á kokteilanámskeið þar sem rabarbarinn verður í aðalhlutverki.

26.–28. júní Sumartónlistarhátíðin Hverafuglar

Hverafuglar er ný hátíð í Hveragerði sem leggur áherslu á samtímatónlist og heilmikil dagskrá verður í boði. Setningin fer fram í Blómaborg á föstudeginum klukkan 17. Morguninn eftir, kl. 11, verður haldið áfram í Hveragerðiskirkju og hefst lokadagurinn á tónleikum í sundlauginni Laugaskarði. Frekari upplýsingar má finna á www.hverafugl.com.

Júlí

1.–5. júlí Þjóðlagahátíðin á Siglufirði

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði fram fyrstu dagana i júlí. Þar verður hægt að sjá fjöldann allan af hljómsveitum vítt að spila þjóðlagatónlist. 

1.–5. júlí Írskir dagar á Akranesi

Bæjarhátíðin Írskir dagar fer fram með pompi og prakt - MÆTA!

Frá Goslokahátíð í Vestmannaeyjum. 

2.–5. júlí Goslokahátíð Vestmannaeyja

Á Goslokahátíðinni er endalokum eldgossins á Heimaey 1973 fagnað ár hvert. Barnadagskrá verður fjölbreytt og má þar nefna Goslokahlaup, Jón Jónsson, Sólon og Dimmu dúsk og BMX brós í boði Ísfélagsins og sundlaugarpartí með SZK. Auk þess verða leikir og fjör í miðbænum í boði og/eða með þátttöku fyrirtækja og félagasamtaka. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar og á samfélagsmiðlum en dagskráin er enn í mótun.

2.–5. júlí Heim í Búðardal

Bæjarhátíðin vinsæla í Búðardal býður gestum sínum upp á þétta dagskrá en þann 4. júlí fer svo fram skottsala á planinu við Stjórnsýsluhúsið.

5. júlí Bryggjuhátíð Stokkseyrar

Bryggjuhátíðin býður upp á fjölbreytta afþreyingu. Leikhópurinn Lotta skemmtir yngri kynslóðinni, hringekja, hoppukastalar og ýmis skemmtun verður í boði fram að kvöldi. Þá taka við BMX brós, Kristmundur Axel, Brenna og Andri Þór trúbador þannig að enginn verður svikinn af alvöru gleði!

9.–12. júlí Grill- og tónlistarfestivalið Kótilettan á Selfossi

Í bland við tónleikahald hefur Kótilettan fest sig í sessi sem ein stærsta grillveisla landsins. Skipa íslenskir matvælaframleiðendur stóran sess á hátíðinni og um að gera að bragða á íslensku kjöti, grænmeti og öðru góðgæti og kynna sér heitustu grillin á markaðnum í dag. Fram koma meðal annars Retro Stefson, Siggu Beinteins, Eirík Hauksson, Herra Hnetusmjör, Kristmund Axel, Aron Can, 12:00, Issa, GDRN, Tónhyl Akademía o.fl. Stuð sem enginn má missa af og miðar á festivalið fljótir að seljast upp. www.kotilettan.is

Skylt efni: hátið | viðburðadagatal

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.