Matarafgangar úr Hámu mötuneyti Háskóla Íslands fara í moltugerðina.
Matarafgangar úr Hámu mötuneyti Háskóla Íslands fara í moltugerðina.
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vélin breytir lífrænum úrgangi í lífrænan áburð og hafa síðan í byrjun árs farið rúmlega þrjú tonn í gegnum hana.

Jarðgerðarvélin.

Jarðgerðarvél háskólans er frá fyrirtækinu Pure North sem leggur áherslu á sjálfbærni og úrgangsmál. Vélin breytir lífrænum úrgangi í næringarríkan lífrænan áburð á skömmum tíma með aðstoð örvera og hita. Flestallar matarleifar mega fara í vélina en hlutir sem jarðgerast ekki, eins og matarolía og stór kjötbein, mega ekki fara meðferðis og engin ólífræn efni líkt og plast. Moltan sem verður til inniheldur næringarefni sem henta vel til ræktunar samkvæmt upplýsingum frá Pure North.

Sólrún Sigurðardóttir, verkefnastjóri á Framkvæmda- og tæknisviði Háskóla Íslands, segir verkefnið hafa farið vel af stað. „Við höfum verið að kaupa moltu annars staðar frá í gegnum tíðina en hér á háskólasvæðinu er stórt mötuneyti og eldhús svo okkur fannst tilvalið að nýta okkar eigin lífræna úrgang í moltugerð,“ segir Sólrún. Sú molta er síðan notuð á lóðir Háskólans og segir Sólrún fallegt að sjá þessa hringrás virka. Í samþykktri þróunaráætlun HÍ er áhersla á að auka hlutfall grænna svæða og segir Sólrún að það verði því heldur betur þörf fyrir moltu.

Kveikjan að verkefninu kom í kjölfar kynningar frá Pure North á hagkvæmari og sjálfbærari sorplausnum og keypti Háskóli Íslands bæði jarðgerðarvél og baggapressuvél sem bindur pappaúrgang. „Við kaupum þjónustu frá Pure North til þess að greina reikninga frá Gámafélaginu til að við getum fundið aukna hagkvæmni í okkar úrgangsstjórnun,“ segir Sólrún. Með því að skilja hvers vegna kostar meira að losa rusl úr einni geymslu en annarri eða hversu margar tunnur þarf á hverjum stað getur Háskólinn unnið að því að minnka rusl en líka gera það hagkvæmara.

Allur lífrænn úrgangur er vigtaður og skráður í spjaldtölvu áður en hann fer í vélina.

„Á einni viku nær vélin að búa til moltu og á þeim tíma minnkar rúmmálið í vélinni um níutíu prósent, svo þetta brotnar hratt niður,“ segir Sólrún. „Við erum að setja í vélina frá mánudegi til laugardags og svo þarf að passa að ekkert fari í vélina í sólarhring áður en vélinni er leyft að klára ferlið og hægt er að tæma moltu úr vélinni.“ Enn sem komið er eru það eingöngu matarleifar úr Hámu, mötuneyti háskólans, sem fara í vélina en markmiðið er að geta tekið við úrgangi úr fleiri eldhúsum á háskólasvæðinu, frá kaffistofum og þeim úrgangi sem fer í almennt lífrænu tunnurnar í byggingunum. Að sögn Sólrúnar þarf að virkja fólk til að taka þátt í verkefninu, „til að geta sett það sem fer í lífrænu tunnurnar í vélina þurfum við að biðja fólk að passa sig á að setja ekkert annað í þær tunnur, ekki plast eða neitt annað í dallana. Það þurfa allir að taka þátt.“ Lífræni úrgangurinn er vigtaður og skráður áður en hann er settur í vélina og að sögn Sólrúnar fara 50 kíló í vélina suma daga.

„Það er þægilegt að nota vélina og það er alls ekki mikil lykt af moltunni,“ segir Sólrún, sem er bjartsýn á þetta tilraunaverkefni. „Ef þetta gengur vel sjáum við fyrir okkur að auglýsa moltu gefins, auk þess sem við notum hana á okkar stóru svæði. Við höfum tvisvar gefið gestum og gangandi moltu á viðburðum og það er framtíðarsýnin, enda held ég að það sé alveg notagildi fyrir moltuna. Úrgangurinn er ákveðin auðlind. En í bili er þetta okkar litla hringrásarkerfi.“ 

Skylt efni: molta | Háskóli Íslands

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...