Gróðursetning skógarplantna
Á faglegum nótum 18. maí 2026

Gróðursetning skógarplantna

Höfundur: Guðríður Baldvinsdóttir
Guðríður Baldvinsdóttir.

Nú líður að þeim tíma þegar skógarbændur hefja vorverkin. Því er ekki úr vegi að rifja upp nokkur praktísk atriði varðandi gróðursetningu og áburðargjöf skógarplantna.

Gróðursetningu má hefja um leið og frost fer úr jörðu. Því er vor og fyrri hluti sumars besti tíminn. Einnig er hægt að gróðursetja eftir miðjan ágúst og þangað til frýs að hausti, en það getur hentað þar sem hættir við sumarþurrkum.

Plöntur þurfa að vera fullar af vatni og næringu þegar þær eru gróðursettar; ekki veitir af þar sem þeirra bíður erfitt hlutverk við að venjast nýju umhverfi. Blautar plöntur renna líka betur gegnum gróðursetningarstafinn. Plöntur þarf einnig að vökva með áburðarvatni ef þær standa heima á plani í einhvern tíma. Einföld uppskrift að áburðarvatni er að gera fyrst áburðarstofnlausn úr 10 lítrum af vatni og 200 g af tvígildum áburði (N og P). Nota síðan 0,5 l af stofnlausninni blandaðri við 10 l af vatni til að vökva með. Best er að fara ekki með fleiri plöntur út á skógræktarsvæðið en gert er ráð fyrir að gróðursetja þann daginn enda er sjaldnast aðstaða til vökvunar úti í mörkinni.

Gróðursetningarstaðir, gæði og áburðargjöf

Mikilvægt er að velja réttan gróður- setningarstað.

  • Skjólmegin við þúfur eða steina og finna staði með góðri rótfestu.
  • Forðast beran jarðveg vegna frostlyftingarhættu.
  • Planta í hliðar þúfnanna í þýfðu landi, en ekki áveðurs á toppnum eða í dældir.
  • Í jarðunnu landi er best að planta á mótum rásarinnar og kúfsins.

Gróðursetja þarf hæfilega djúpt þannig að rótarhnausinn sé rúmlega 2 cm undir jarðvegsyfirborðinu. Plantan þarf að vera lóðrétt og hnausinn óbeyglaður. Að lokum þarf að þjappa vel að plöntum, t.d. með skóhælnum.

Nauðsynlegt er að bera á allar trjátegundir við gróðursetningu nema lerki. Miðað er við ca 10 g á plöntu, eða sem samsvarar sléttfullri matskeið. Áburðinum er dreift í hring um 5–10 cm frá plöntunni. Áburður má alls ekki liggja upp við stofninn því hann getur þurrkað upp litlar plöntur.

Þéttleiki og skipulag

Mikilvægt er að halda hæfilegum þéttleika við gróðursetningu. Þéttleikinn fer eftir tilgangi skógarins; beitarskógur eða landgræðsluskógur þarf ekki að vera þéttur, en skógur til timburframleiðslu þarf þess til að ná upp timburgæðum.

Til að mæla þéttleika má nota 3,99 m langan bandspotta festan á stöng sem sett er niður í miðja gróðursetningu og genginn hringur. Allar plöntur innan hringsins eru taldar og fæst þá fjöldinn á 50 m2 svæði. Sú tala er margfölduð með 200 til að fá fjölda á hektara.

Gott er að afmarka gróðursetningarsvæði dagsins og halda sig við ákveðið munstur. Fyrir óvana er gott að setja niður stangir til viðmiðunar við upphafs- og endapunkt hverrar gróðursetningarlínu en hafa í huga að plönturnar falli ekki í þráðbeinar línur milli stanganna. Einnig er gott að leitast við að láta plöntur skarast milli gróðursetningarlína.

Mun auðveldara er að planta með brekkunni en upp og niður, auk þess sem gróðursetningarlínur upp og niður brekkur verða nokkuð áberandi, a.m.k. fyrstu 20 árin. Best er að láta gróðursetningu fylgja náttúrulegum línum í landslagi en ekki girðingum.

Gangi ykkur vel!

Guðríður Baldvinsdóttir, skógræktarráðgjafi hjá Landi og skógi.

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...