Bændur fengu síðast greitt í janúar fyrir ullarinnlegg sitt hjá Ístex.
Bændur fengu síðast greitt í janúar fyrir ullarinnlegg sitt hjá Ístex.
Mynd / smh
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Ýmsir möguleikar til skoðunar varðandi fasteignir og reksturinn

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn afar erfið og ekki fyrirsjáanlegt að hægt verði að greiða bændum fyrir ullarinnlegg í september.

„Við erum að ýta mörgum boltum á undan okkur frá fyrra ári, margt að hækka og raungengi hátt. Við höfum því ekki náð að greiða til bænda í sumar og náum því ekki í september heldur,“ segir Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex.

Bið á vöruskiptin

Ístex hefur glímt við mikinn rekstrarvanda frá árinu 2024 og náði ekki að greiða bændum neitt vegna ullarinnleggs á árinu 2025. Ístex greiddi bændum síðast í janúar á þessu ári, en þá var um helmingur uppsafnaðra heildarskulda greiddur, eða samtals 90 milljónir króna.

Í júní bauðst bændum hins vegar að umbreyta kröfum í hlutafé í fyrirtækinu eða að þiggja vörur upp í skuldirnar.

„Margir bændur hafa nýtt sér möguleikann að kaupa sér teppi og sængur eða að andvirði 34 milljóna króna. Þetta hefur komið sér ágætlega, meðal annars vegna þess að Rammagerðin, sem hefur verið einn af okkar stærstu teppasöluaðilum, hefur átt erfitt. Við stefnum að því að setja bið á vöruskipti við bændur í byrjun október, meðal annars vegna verðhækkana sem hafa orðið og eru að lenda á okkur,“ segir Sigurður.

Ýmsir möguleikar til skoðunar

Sigurður segir að salan hafi verið góð seinni part sumars og verkefnastaðan sé góð núna í haust, bæði fyrir innlendan markað og erlendan.

Hann segir að ýmsir möguleikar séu til skoðunar varðandi fasteignir og reksturinn, til að laga greiðslustöðu fyrirtækisins.

Skylt efni: Ístex

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...