Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Ný stjórn sauðfjárdeildar Bændasamtaka Íslands. Þórarinn Óli Rafnsson, í varastjórn, Birgir Haraldsson, Ásta Fönn Flosadóttir, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Sveinn Úlfarsson, í varastjórn. Á mynd vantar Sigríði Ólafsdóttu, í varastjórn, og Sigurborgu Hönnu Sigurðardóttur.
Ný stjórn sauðfjárdeildar Bændasamtaka Íslands. Þórarinn Óli Rafnsson, í varastjórn, Birgir Haraldsson, Ásta Fönn Flosadóttir, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Sveinn Úlfarsson, í varastjórn. Á mynd vantar Sigríði Ólafsdóttu, í varastjórn, og Sigurborgu Hönnu Sigurðardóttur.
Mynd / smh
Fréttir 26. mars 2026

Góður samhljómur fyrir búvörusamningana

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á deildarfundi sauðfjárbænda var Eyjólfur Ingvi Bjarnason endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára án þess að mótframboð bærist.

Nýja stjórn skipa þau Ásta Fönn Flosadóttir og Birgir Haraldsson, árin 2025 til 2027, og Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Sigurborg Hanna Sigurðardóttir fyrir árin 2026 til 2028. Fráfarandi stjórnarmaður er Magnús Helgi Loftsson, en Þuríður Lillý kemur ný inn í stjórn.

Tollamálin mikilvæg sauðfjárbændum

Eyjólfur segir að fundurinn hafi gengið vel. „Það var góður samhljómur í fulltrúum og alveg skýrt hvað við viljum sjá til framtíðar. Við förum nú í markvissa vinnu með Bændasamtökunum fyrir komandi búvörusamningagerð.“

Hann segir að staða sauðfjárbænda hafi lagast aðeins að undanförnu en það sé ýmislegt í óvissu nú með boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. „Þar er kannski ekki endilega stuðningsumhverfi Evrópusambandsins sem skiptir mestu máli heldur tollamálin. Verði brottfall á tollum í hinum kjötgreinunum mun það væntanlega leiða til lækkunar á sauðfjárafurðum líka á Íslandi. Tollverndin skiptir okkar grein miklu máli líka.

Sauðfjárrækt er víða undirstaða byggðar í dreifbýli og það ekkert samfélag sterkara en veikasti hlekkur þess. Ég vonast því til að samdrættinum sé lokið og við getum farið að spyrna við.“

Rafrænt kjötmat mikilvægt

Þegar Eyjólfur er beðinn um að nefna sérstök mál sem standi upp úr frá fundinum, segir hann að samningsmarkmið búvörusamninganna hafi verið mikilvægt mál. Þar er lagt til að ekki verði gerðar verulegar breytingar á núverandi stuðningskerfi, þar sem almenn sátt ríki um núverandi fyrirkomulag ríkisstuðnings við sauðfjárframleiðslu. 

„Það er líka hægt að nefna tillöguna um rafrænt kjötmat, sem mun leiða til mikilla framfara ef allt virkar eins og það á að virka. Þá hverfur hið huglæga mat út úr ferlinu og í staðin koma mældar stærðir. Við gerum ekki ráð fyrir því að það verði búið að innleiða þetta næsta haust en vonandi haustið 2027 ef allt gengur upp. Það hefur auðvitað lengi verið tortryggni gagnvart þessu hefðbundna kjötmati og sjálfsagt verður tortryggni út í þetta líka – í það minnsta tilað byrja með.“ /smh

 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f