Góðar fréttir af Alþingi
Mynd / Úr safni
Skoðun 5. maí 2026

Góðar fréttir af Alþingi

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Í hagsmunabaráttu fer stór hluti tíma manns í að skoða það sem betur má fara, það sem er gallað, ómögulegt og þarf að laga. En stundum fær maður tækifæri til að taka undir með stjórnvöldum þegar þau eru á réttri leið og er það alltaf ánægjulegt.

Á dögunum mælti Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku. Í mjög einföldu máli felur frumvarpið það í sér að sá kerfislægi munur sem verið hefur á dreifingarkostnaði raforku eftir búsetu verður nánast – en ekki að öllu leyti – þurrkaður út.

Eins og ráðherra bendir sjálfur á er um verulegt hagsmunamál að ræða fyrir bændur, því öll notum við rafmagn í okkar búrekstri, hvort sem það er lýsing í gróðurhúsum, kæling mjólkur og grænmetis, ljós og rafbúnaður í gripahúsum. Miðað við útreikninga ráðuneytisins verður um að ræða lækkun á raforkukostnaði býla um tugi þúsunda króna í hverjum mánuði og í ákveðnum tilvikum getur þessi fjárhæð farið yfir hundrað þúsund krónur á mánuði.

Það munar um minna.

Þetta er ekki bara hagsmunamál bænda, heldur er þetta stórt réttlætismál fyrir öll þau sem búa í dreifbýli, því kostnaður sem fólk í dreifbýli greiðir fyrir dreifingu raforku er mun hærri en það sem fólk greiðir í þéttbýli. Það er því ekki bara sanngjarnt heldur einnig eðlilegt að jafna þennan kostnað, hvernig sem á það er litið, en þessi aðgerð mun líka styðja við byggð í hinum dreifðari byggðum landsins.

Frumvarpið er að sjálfsögðu ekki fullkomið, ekki frekar en önnur mannanna verk. Mögulega þarf að skoða hvort hægt sé að hnika til skilgreiningum á því hvað telst til dreifbýlis og hvað ekki í skilningi laganna, en ég hef engar áhyggjur af því að ekki sé hægt að gera þetta góða frumvarp enn betra.

Mikilvægara er að ráðherra og stjórnvöld almennt fylgist grannt með hegðun dreifingarfyrirtækjanna og verðlagningu þeirra næstu árin. Sagan sýnir nefnilega að þegar skref hafa verið stigin til að jafna dreifingarkostnaðinn þá vill dreifingarkostnaðurinn hækka mjög hratt aftur.

Eftir að orkugjald í dreifbýli hækkaði um 24% árið 2014 og 2015 steig ríkið inn með dreifbýlisframlag til jöfnunar á flutnings- og dreifingarkostnaði. Við það lækkaði kostnaður í dreifbýli vegna orkugjalds um ein 50% og bilið milli raforkutaxta í dreifbýli og þéttbýli varð svipað og það hafði verið árið 2005. En það var skammgóður vermir. Strax ári síðar hækkuðu gjaldskrár vegna orkugjaldsins um 53%, aftur árið eftir um 12% og svo um 30%. Árið 2018 var því kostnaður vegna orkugjaldsins í raun orðinn sá sami og hann hefði verið ef ekki hefði komið til jöfnunarframlag frá ríkinu.

Þetta er náttúrlega bara eitt dæmi um það að fyrirtæki, jafnvel fyrirtæki í opinberri eigu, ganga á lagið og hækka verð þegar gripið hefur verið til ráðstafana til að létta á byrði þeirra sem greiða verðið.

Það er mikilvægt fyrir hagsmuni bænda og annarra íbúa í dreifbýli að vel sé fylgst með verðlagningu dreifingarfyrirtækjanna næstu árin. En það er líka mikilvægt vegna þess að allar hækkanir skila sér á endanum út í verðlagið og verðbólguna.

Ég treysti því að stjórnvöld sofi ekki á verðinum í þessu máli og að þetta góða frumvarp fái hraða afgreiðslu í gegnum þingið.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...