Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Höfundur: Þröstur Helgason

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að myndast milli þess sem ríkið innheimtir af ökutækjum, eldsneyti og akstri annars vegar og þess sem varið er til vegasamgangna hins vegar. Samkvæmt greiningunni mun gjaldheimtan aukast verulega á næstu tveimur árum á sama tíma og heildarframlög til vegasamgangna dragast saman að raunvirði.

Á árunum 2019 til 2025 innheimti ríkið alls 338,1 milljarð króna með beinum gjöldum af ökutækjum, eldsneyti og akstri. Á sama tímabili námu heildarútgjöld til vegasamgangna 255,2 milljörðum króna. Mismunurinn nam því 82,9 milljörðum króna.

Þegar eingöngu er horft til þeirra fjármuna sem fóru í viðhald og nýframkvæmdir á vegakerfinu verður bilið enn meira. Samtals fóru 180,7 milljarðar króna til slíkra verkefna á tímabilinu. Það þýðir að fyrir hverjar 100 krónur sem ríkið innheimti af umferðinni fóru að jafnaði aðeins um 53 krónur til viðhalds og uppbyggingar vega.

Bilið stækkar ár frá ári

Samkvæmt greiningu SI hefur munurinn á gjaldheimtu og útgjöldum aukist hratt frá árinu 2022. Þá nam munurinn 7,8 milljörðum króna en hækkaði í 17,2 milljarða árið 2023, 18,8 milljarða árið 2024 og 21 milljarð árið 2025.

Árið 2026 er áætlað að bilið verði 23,1 milljarður króna og samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 muni það aukast enn frekar. Þá er gert ráð fyrir að ríkið innheimti 83,9 milljarða króna af ökutækjum, eldsneyti og akstri en verji aðeins 50 milljörðum króna til vegasamgangna. Munurinn verður því 33,9 milljarðar króna.

Það jafngildir því að ríkið verji aðeins um 60 krónum til vegasamgangna fyrir hverjar 100 krónur sem það innheimtir af umferðinni. Sé eingöngu horft til viðhalds og nýframkvæmda á vegakerfinu lækkar hlutfallið í um 39 krónur af hverjum 100 krónum.

Gjaldheimta hækkar en framkvæmdir dragast saman

Í greiningunni er sérstaklega bent á að tekjurnar fari vaxandi á sama tíma og fjárveitingar til vegakerfisins dragast saman.

Bein gjaldheimta á að hækka úr 64,9 milljörðum króna árið 2025 í 83,9 milljarða árið 2027. Það jafngildir 29% hækkun að nafnvirði og 18% hækkun að raunvirði.

Á sama tíma lækka heildarútgjöld til vegasamgangna úr 53,9 milljörðum króna árið 2026 í 50 milljarða árið 2027. Að raunvirði nemur samdrátturinn 11%.

Þótt fjárveiting til viðhalds hækki úr 17,5 milljörðum króna í 20 milljarða króna á milli áranna 2026 og 2027 dugar það ekki til að vega upp á móti samdrætti í nýframkvæmdum. Heildarfjármunir til framkvæmda á vegakerfinu lækka úr 34,3 milljörðum króna í 32,5 milljarða og dragast saman um rúmlega 9% að raunvirði.

Vegir í slæmu ástandi

Niðurstöðurnar koma fram á sama tíma og stjórnvöld hafa sjálf bent á verulega uppsafnaða viðhaldsþörf í vegakerfinu.

Í fjármálaáætlun 2027–2031 kemur fram að um 40% þjóðvega séu í slæmu eða mjög slæmu ástandi og að um 30% vegakerfisins hafi slakt burðarlag.

Í innviðaskýrslu SI og Félags ráðgjafarverkfræðinga frá 2025 fékk vegakerfið einkunnina 2 af 5. Þar var uppsöfnuð viðhaldsskuld metin á bilinu 265 til 290 milljarðar króna.

SI segir að aukin umferð og þyngri ökutæki hafi aukið álag á vegina á sama tíma og fjárfestingar hafi ekki fylgt eftir.

Kílómetragjaldið verður stærsti tekjustofninn

Með breytingum sem tóku gildi í byrjun árs 2026 voru hefðbundin elds- neytisgjöld afnumin og kílómetragjald tekið upp í þeirra stað.

Samkvæmt áætlunum mun kílómetragjaldið skila 37,1 milljarði króna árið 2026 og 43,4 milljörðum árið 2027. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 15,9% hækkun gjaldsins.

SI bendir á að þrátt fyrir breytinguna á kerfinu muni heildargjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri aukast verulega.

Kalla eftir því að tekjurnar renni til vegakerfisins

Samtök iðnaðarins telja að tryggja þurfi með skýrari hætti að þeir fjármunir sem innheimtir eru af umferð renni til uppbyggingar og viðhalds samgönguinnviða.

Að mati samtakanna sýna fyrirliggjandi áætlanir að aukin gjaldheimta leiði ekki sjálfkrafa til aukinna fjárfestinga í vegakerfinu. Þvert á móti sé útlit fyrir að bilið milli tekna ríkisins af umferð og útgjalda til vegasamgangna muni halda áfram að breikka á næstu árum, þrátt fyrir vaxandi innviðaskuld og versnandi ástand hluta vegakerfisins.

Skylt efni: Vegagerð | Vegamál

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...