Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrsta jólatré ársins í Heimörk í síðustu viku.
Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrsta jólatré ársins í Heimörk í síðustu viku.
Mynd / Sævar Hreiðarsson
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Einn mesti annatími ársins er þar með hafinn, en í fyrra seldi félagið 1.765 jólatré.

„Við erum rétt nýbúin að ljúka sumrinu áður en við erum farin að undirbúa jólin,“ segir Hjördís Jónsdóttir, viðburðastjóri og jólamarkaðsstjóri hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, í samtali. „Við felldum fyrstu þrjú jólatrén í síðustu viku fyrir Orkuna og fara næstu tvær vikur í að finna stór tré sem við útvegum hinum og þessum fyrirtækjum og stofnunum og skreyta borgina. Eitt stærsta verkefni Sævars Hreiðarssonar skógarvarðar þessa dagana er að finna Oslóartréð sem mun prýða Austurvöll og verður tendrað fyrsta sunnudaginn í aðventu. Hefð er fyrir því að borgarstjórinn komi og felli tréð með okkur um miðjan nóvember.

Þann 3. nóvember stendur til að byrja að fella stofutré, sem eru að megninu til fura sem þolir vel að bíða eftir jólunum. Á sama tíma byrjum við að framleiða tröpputré sem eru látin standa utandyra í trjábolum. Þau lifa ótrúlega lengi, en tröpputrén sem við settum fyrir utan skrifstofu Skógræktarfélags Reykjavíkur um síðustu jól voru enn þá lifandi þegar við fjarlægðum þau um vorið.

Við leggjum áherslu á sjálfbæra grisjun skógarins og fellur framleiðsla jólatrjáa vel inn í það. Þeir sem kaupa jólatré eru þar með að styrkja félagið og hjálpa okkur að standa undir grisjun á skóginum. Íslenskir skógar eru orðnir það stórir að þeir gætu annað allt að tveimur þriðju af sölu á lifandi jólatrjám. Núna eru þau flest innflutt, en það er hægt að minnka þennan innflutning ef fólk kaupir jólatré af skógræktarfélagi í sínu nágrenni.

Þessa dagana erum við komin á fullt að skipuleggja viðburði í kringum jólin, en við seljum jólatré á jólamarkaðnum, jólaskóginum og á Lækjartorgi. Aðventuhelgin hittir á sama tíma og Black Friday og fylgir því mikill æsingur þegar fólk fer og kaupir gjafir á góðu verði. Í staðinn fyrir þetta ætlum við að búa til öðruvísi stemningu í skóginum og þeir sem koma á jólamarkaðinn þessa helgi geta tekið þátt í slökun með andlegri hvíld, núvitund og skógarböðum,“ segir Hjördís.

Skylt efni: Heiðmörk

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...