Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Fundað um líffræðilega fjölbreytni
Fréttir 12. maí 2026

Fundað um líffræðilega fjölbreytni

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Til umræðu var aðgerðaáætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni og samþættingu málaflokka tengdum umhverfismálum. 

Jóhann Páll Jóhannsson og Astrid Schomaker. Mynd / Stjórnarráðið

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að Schomaker hafi lagt áherslu á mikilvægi þess að brjóta niður veggi í stjórnsýslu umhverfismála. Ákvarðanir á einu sviði geti haft bein áhrif á önnur svið og því skipti máli að loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, umhverfis-  og orkumál séu unnin í samhengi. Hún lýsti yfir ánægju með að þessir málaflokkar væru sameinaðir á Íslandi. Jóhann Páll sagði tækifæri til að tengja enn betur saman aðgerðir í loftslagsmálum og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. 

„Við leggjum áherslu á loftslags- og umhverfisverndaraðgerðir með margþættan ávinning. Þessa dagana erum við að leggja lokahönd á aðgerðaráætlun um líffræðilega fjölbreytni, til að fylgja eftir stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni sem við samþykktum fyrr á þessu ári. Sú aðgerðaráætlun verður nátengd forgangsverkefnum okkar í loftslagsmálum og mun spila vel saman við aðra stefnumörkun. Heilbrigð vistkerfi skipta máli fyrir loftslag, fæðuöryggi, vatnsbúskap, kolefnisbindingu og lífsgæði um allt land.” sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra.

Jafnframt ræddu Jóhann Páll og Astrid um mikilvægi hafverndar til að tryggja líffræðilega fjölbreytni í hafi og þau ræddu nýlega samþykkt lög um vernd líffræðilegrar fjölbreytni á úthafi til innleiðingar á samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni á úthöfum (Biodiversity Beyond National Jurisdiction).

Aðgerðaáætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni var birt í desember 2025. Meginstef stefnunnar snýr að því að málefni líffræðilegrar fjölbreytni fái meira vægi í opinberri stefnumótun, áætlanagerð og ákvarðanatöku á öllum stjórnsýslustigum. Í áætluninni var sett markmið um að 30% raskaðra vistkerfa á landi, í ferskvatn, til stranda og sjávar verði í virkri endurheimt árið 2030. Jafnframt er fjallað um mikilvægi þess að bregðast vð framandi ágengum tegundum og setja skýra lagalega og stjórnsýslulega umgjörð um málaflokkinn. 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f