Þær stöllur, Auður, Elka, Hulda og Feng.
Þær stöllur, Auður, Elka, Hulda og Feng.
Líf og starf 3. nóvember 2026

Frumsýning á Kvennaráð

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir leikritið Kvennaráð eftir leikskáldið og rithöfundinn Sellu Páls. þann 30. október í Rauða húsinu á Eyrarbakka.

Kvennaráð fjallar um Þorgerði, áttræða ekkju sem stóð í skugga manns síns í fimmtíu ár, stoð hans og stytta – en nú vill hún breyta til og gera það sem hana langar! Ekki eru allir sammála um ágæti þeirrar hugmyndar, en þessi nýfengna frelsisþrá og sjálfstæði fer eitthvað fyrir brjóstið á einkadótturinni Birnu. 

Samband þeirra mæðgna var reyndar heldur þvingað fyrir, en Þorgerði grunar tengdason sinn um græsku ... Lítið gengur hjá Birnu að halda móður sinni á mottunni, því heimilishjálpin, hin asíska Mei, reynist Þorgerði óvæntur bandamaður. Birna bregst illa við og ásakanir um samsæri fljúga um loftið auk þess sem beitt og kómískt uppgjör þeirra mæðgna mun án efa kitla hláturtaugar leikhúsgesta.

Verkið var frumkynnt með leiklestri á vegum hópsins Leikhúslistakvenna 50+ í Hannesarholti árið 2018 undir leikstjórn Sveins Einarssonar og hlaut mikið lof gagnrýnenda.

Hulda Ólafsdóttir leikstýrir nú verkinu og leikarar eru Auður Elín Hjálmarsdóttir, Elka Long Rúnarsdóttir og Feng Hannesdóttir, búningahönnuður er Eygerður Þórisdóttir. 

Miðasala er á tix.is, miðaverð 3.500 kr. en sýningar verða alls sex talsins. Frumsýningin verður þann 30. okt. kl. 20 og næstu sýningar 1. nóv. kl. 15, 7. nóv. kl. 15, 8. nóv kl. 15, 13. nóv. kl. 20 og loks 15. nóv. kl. 15. Nánari upplýsingar veitir Sesselja Pálsdóttir, kynningarfulltrúi Leikfélags Eyrarbakka, í s.8673370, eða leikkfelageyrarbakka[hjá]gmail.com.

Gaman er að segja frá því að sýndar verða fjölbreyttar hannyrðir eftir konur á Eyrarbakka – fyrir sýningar og í hléi. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...