Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Höfundur: Þröstur Helgason

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts við óskir Verslunarmannafélags Reykjavíkur (VR), Landssambands íslenskra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins um að leggja sitt af mörkum til þess að ekki kæmi til uppsagnar kjarasamninga.

„SS hefur fjallað um þessa beiðni og telur rétt, sem ábyrgur aðili, að taka tillit til þessara óska vegna þess sem er í húfi,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu. „Verðhækkun allra vara í smásölu undir vörumerkjum SS, 1944 og Búrfell sem áttu að hækka um 3% hefur verið frestað fram í janúar. Nokkrir vöruliðir í smásölu sem áttu að hækka um 5% munu hækka um 3%.“

Kostnaður SS við að fresta eða breyta nefndum verðbreytingum er áætlaður 90-110 mkr. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, segir að frestun hækkana muni ekki hafa áhrif á verð til bænda en félagið er að fullu í eigu bænda.

Verðhækkanir haustsins voru ætlaðar til að mæta hluta þeirra kostnaðarhækkana sem orðið hafa á árinu. „Frá áramótum þá hafa plastumbúðir hækkað um 16-30%, flutningskostnaður aukist um 15%, önnur rekstrarvara hækkað um 5-15% og laun hækkað um 5,3%. Áætluð hækkun til bænda er 3-4%. Til að mæta hluta þessa kostnaðarauka ætlaði SS að hækka verð um 3-5% á næstu dögum,“ segir í tilkynningunni.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...