Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða
Mynd / bbl
Fréttir 28. september 2026

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Framlög til Loftslags- og orkusjóðs verða skert um 3,2 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2027.

Í greinargerð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um orkumál fjárlagafrumvarpsins kemur fram að lækkunin skiptist annars vegar í 1,2 milljarða króna sértæka aðhaldsráðstöfun, sem gert hafði verið ráð fyrir í fjármálaáætlun, og hins vegar tveggja milljarða króna óskipta aðhaldsráðstöfun á málefnasviði orkumála, sem lögð er á sjóðinn í heild sinni. Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun á útgjaldaheimild sjóðsins síðan að hækka um einn milljarð króna árið 2028.

Hefur stutt verkefni í landbúnaði

Loftslags- og orkusjóður hefur meðal annars fjármagnað orkuskipti í samgöngum og verkefni í landbúnaði.

Í tveimur úthlutunum var alls 236 milljónum króna ráðstafað úr sjóðnum til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum sem bændur nýttu sér meðal annars til fjárfestinga í LED-lýsingu. Alls var úthlutað til 21 verkefnis garðyrkjubænda sem áætlað er að geti náð fram um 17,8 gígavattstunda árlegum raforkusparnaði.

Markmið um að draga úr áburðarnotkun Síðasta vor úthlutaði sjóðurinn samtals 80 milljónum króna til 42 verkefna til loftslagsvænna tæknilausna í landbúnaði, sem hafa meðal annars snúist um að draga úr áburðarnotkun á tilbúnum áburði með nákvæmari og markvissari vinnubrögðum.

Meðal verkefna í þeirri úthlutun voru kaup á GPS-stýrðum áburðardreifurum, bætt tækni fyrir lífrænan áburð og kaup á ýmsum tækjakosti. Áætlað var að samdráttur í losun vegna þessara loftslagsaðgerða myndi verða 1.007 tonn af koltvísýringsígildum á ári. Talið var að ávinningurinn yrði fjölþættur, rekstrarsparnaður í búrekstri, betri meðferð á takmörkuðum auðlindum og minni vistkerfisröskun.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...