Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta
Skeifudagurinn fór fram á sumardaginn fyrsta að Mið-Fossum í blíðskaparveðri. Viðburðurinn er einn af hápunktum skólaársins hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Fjölmenni var á viðburðinum á Mið-Fossum og síðar um daginn var opið hús í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Dagská Skeifudagsins fór fram með hefðbundum hætti með fánareið og opnunarávarpi Eyjólfs Guðmundssonar deildarforseta. Frú Halla Tómasdóttir setti daginn formlega að þessu sinni, en þetta er í 69 sinn sem Skeifudagurinn er haldinn hátíðlegur. Í ræðu forseta sagði meðal annars: „Íslenskur landbúnaður er ekki aðeins hluti af fortíð okkar og sögu heldur lykill að framtíð okkar Íslendinga sem þjóðar.“
Eftir setningarræðu forseta var fjölbreytt dagskrá þar sem nemendur sýndu afrakstur vetrarins og kepptu í fjölda greina.
Keppt var í fjórgangi (V2) í fullorðinsflokki og var hart barist um efstu sætin. Eftir forkeppnina leiddu þær Guðrún Tinna Rúnarsdóttir og Katrín Diljá Vignisdóttir, en þær héldu sínum sætum í úrslitum eftir glæsilega frammistöðu.
Verðlaun og heiðursmerki
Eftir sýningar á Mið-Fossum, sem innihéldu meðal annars tamningatryppi nemenda í Reiðmennsku III og skrautreið, var haldið á Hvanneyri þar sem var opið hús og kaffisala.
Á Hvanneyri voru helstu verðlaun dagsins afhent:
- Morgunblaðsskeifan 2026: Sólrún Silfá Guðmundsdóttir hlaut þessa æðstu viðurkenningu ársins.
- Framfaraverðlaun Reynis: Guðrún Jóna Stefánsdóttir hlaut þessi hvatningarverðlaun fyrir góðan árangur og framfarir í vetur.
- Eiðfaxabikarinn: Silja Hrönn Sverrisdóttir.
Guðbjartur Þór Stefánsson og Linda Rún Pétursdóttir, reiðkennarar við skólann, veittu nemendum viðurkenningarskjöl. Sigrún Ólafsdóttir, staðgengill fyrir formann Félags tamningamanna, og Eyjólfur Guðmundsson, deildarforseti sáu um afhendingu stærstu verðlaunanna við hátíðlega athöfn.
Að sögn aðstandenda tók á annað hundrað manns þátt í deginum og var stemmningin til fyrirmyndar.
Forkeppni
Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur
- Guðrún Tinna Rúnarsdóttir, Toppur frá Litlu-Reykjum, 5,97
- Katrín Diljá Vignisdóttir, Fold frá Hemlu II, 5,47
- Sólrún Silfá Guðmundsdóttir, Kjarkur frá Ánastöðum, 5,43
- Guðrún Alda Ólafsdóttir, Gullborg frá Haukatungu Syðri 1,5,37
- Mikael Jens Halldórsson, Nös frá Ásatúni, 5,23
- Silja Hrönn Sverrisdóttir, Sprettur frá Brimstöðum, 5,20
- Guðrún Jóna Stefánsdóttir, Rán frá Draflastöðum, 4,63
- Linda Björg K. Kristjánsdóttir, Dreki frá Grýtubakka II, 4,53
- Valgerður Á Sigurðardóttir, Kvöldpula frá Lundi, 4,37
- Friðgeir Óli Eggertsson, Álfadís frá Minni-Völlum, 4,20
A-úrslit
Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur
- Guðrún Tinna Rúnarsdóttir, Toppur frá Litlu-Reykjum, 6,17
- Katrín Diljá Vignisdóttir, Fold frá Hemlu II, 5,97
- Guðrún Alda Ólafsdóttir, Gullborg frá Haukatungu Syðri 1, 5,47
- Sólrún Silfá Guðmundsdóttir, Kjarkur frá Ánastöðum, 5,43
- Mikael Jens Halldórsson, Nös frá Ásatúni, 4,67
B-úrslit
Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur 7
7. Friðgeir Óli Eggertsson, Álfadís frá Minni-Völlum,"5,37"
8. Guðrún Jóna Stefánsdóttir, Rán frá Draflastöðum,"5,20"
9. Silja Hrönn Sverrisdóttir, Sprettur frá Brimstöðum,"5,07"
10. Valgerður Á Sigurðardóttir, Kvöldpula frá Lundi,"4,53"
11. Linda Björg K. Kristjánsdóttir, Dreki frá Grýtubakka II,"4,17"
