Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður kynntur sá hópur sæðingastöðvahrúta sem er í boði í vetur. Hrútum fjölgar úr 49 í 55 frá síðasta ári og þar af eru 44 nýir hrútar.

Að sögn Eyþórs Einarssonar, ráðunautar hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML), verða lambhrútar áfram í aðalhlutverki en þeir verða 36 talsins. „Hér er áherslan áfram sú að innleiða verndandi arfgerðir gegn riðuveiki hratt og vel en reyna að sporna gegn óæskilegri aukn i ngu skyldleikaræktar með því að hafa hröð ættliðaskipti og hóflega notkun á hverjum hrúti. Erfðahlutdeild Gimsteins 21-899 og Gullmola 22-902 lækkar talsvert á milli ára í hrútakostinum en sem dæmi var samanlögð erfðahlutdeild þessara kappa í arfhreinu ARR-hrútunum í fyrra rúmlega 25% en verður í kringum 15% í ár að jafnaði,“ segir hann.

Kynningarfundir vegna útgáfu nýrrar Hrútaskrár.
Hrútaskrá 2026-2027.

Flestir með ARR-arfgerðina

„Megnið af sæðingastöðva- hrútunum, eða 46 þeirra, bera ARR- arfgerðina og þar af 13 sem eru arfhreinir fyrir hinni verndandi arfgerð og er það nánast tvöföldun í fjölda arfhreinna ARR-hrúta milli ára. Meira úrval en áður er af reyndum ARR-hrútum. Teknir voru fimm hyrndir veturgamlir hrútar og einn kollóttur sem allir hafa sýnt góðan eða framúrskarandi árangur sem lambafeður. Þá eru sjö ARR-hrútar sem hefja nú sinn annan vetur á stöð,“ heldur Eyþór áfram.

Hann útskýrir að mórauðir hrútar verði nú í boði í fyrsta sinn sem bera ARR-arfgerðina, bæði hyrndur og kollóttur hrútur og jafnframt sé í fyrsta sinn í boði feldhrútur með þessa verndandi genasamsætu. Hann segir að nýr arfhreinn hrútur með T137-arfgerðina hafi verið tekinn inn, sem kemur frá Sveinsstöðum, en alls verði sex hrútar sem bera þessa arfgerð. Þá séu tíu hrútar með AHQ-arfgerðina og fimm hrútar með C151-arfgerðina.

Tveir feldhrútar og tveir forystuhrútar

Þá hafa tveir nýir feldhrútar verið teknir í hóp stöðvahrúta og tveir nýir forystuhrútar. Eyþór segir að þegar á heildina sé litið megi segja að framboðið á sæðingastöðvunum sé bæði fjölbreyttara og öflugra en á síðasta ári.

Stefnt er að útgáfu Hrútaskrárinnar á vefnum eftir næstu helgi og verður hún aðgengileg hjá RML, Búnaðarsamtökum Vesturlands og Búnaðarsambandi Suðurlands. Eftir útkomu prentuðu útgáfunnar verður henni fylgt eftir með fundum í samstarfi við búnaðarsamböndin víðs vegar um landið þar sem ráðunautar frá RML kynna hrútakostinn.

Skylt efni: Hrútaskrá

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...