Beinar greiðslur til bænda hafa aukist verulega, bæði flatarmálstengdar greiðslur og greiðslur vegna búfjár. Heildarstuðningur hins opinbera hefur þó dregist saman, þar sem gamla finnska kerfið var mjög kostnaðarsamt fyrir skattgreiðendur.“
Beinar greiðslur til bænda hafa aukist verulega, bæði flatarmálstengdar greiðslur og greiðslur vegna búfjár. Heildarstuðningur hins opinbera hefur þó dregist saman, þar sem gamla finnska kerfið var mjög kostnaðarsamt fyrir skattgreiðendur.“
Mynd / Janne Järvinen
Fréttaskýring 4. ágúst 2026

Finnskum búum fækkað úr 120.000 í 40.000 eftir ESB-aðild

Höfundur: Þröstur Helgason

– „Eins og staðan er í dag er enginn betri kostur í boði“

Finnskur landbúnaður hefur verið talsvert til umræðu hér á landi að undanförnu í tengslum við spurningu um það hvort Íslendingar eigi að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Finnar gengu í Evrópusambandið 1. janúar 1995 að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu árið áður. Umræðan hér hefur snúist um það hvaða áhrif innganga Finna hafi haft á þarlendan landbúnað. Bændablaðið ræddi við Johan Åberg, framkvæmdastjóra landbúnaðarmála hjá finnsku landbúnaðarsamtökunum (MTK), og leitaði svara við nokkrum spurningum sem hafa vaknað í umræðunni.

Johan Åberg.

Sumir segja að finnskum landbúnaði hafi hrakað eftir inngöngu landsins í Evrópusam- bandið, aðrir að hann standi mun betur. Talað er um að styrkir hafi aukist til landbúnaðar í Finnlandi, aðrir segja að finnskir bændur standi nú frammi fyrir gríðarlegri skriffinnsku vegna ESB. Enn aðrir segja aðafurðaverð til finnskra bænda hafi lækkað um 40% en matvöruverð um 10%. Sumir segja matarverðið raunar hafa lækkað um 40%. Og þannig mætti áfram telja. 

Johan Åberg segir myndina að mörgu leyti flókna þegar horft er til baka. Þróunin hafi að sumu leyti verið jákvæð en að öðru leyti neikvæð.

Búum fækkað um 80.000

En byrjum á stóru spurningunni. Hvernig metið þið hjá MTK áhrif Evrópusambandsaðildar Finna á landbúnað í landinu?

„Heildaráhrifin hafa verið mjög mikil, sérstaklega á þróun atvinnugreinarinnar til lengri tíma litið. Fyrir aðild að Evrópusambandinu voru um 120.000 bú í Finnlandi en í dag eru þau færri en 40.000. Framleiðslumagnið hefur hins vegar verið nokkuð stöðugt og sjálfsaflafæðishlutfall (sjálfsþurft) mismunandi afurða hefur ekki breyst mikið.

Önnur stór breyting hefur verið sú að farið var úr lokuðum markaði yfir í raunverulegt markaðshagkerfi innan innri markaðar ESB með öllum þeim sveiflum sem því fylgja í afurðaverði, aðfangakostnaði og fleiru.“

Geturðu nefnt nokkur atriði sem hafa færst til betri vegar hjá finnskum bændum eftir inngöngu í Evrópusambandið og nokkur sem hafa færst til verri vegar?

„Það sem hefur batnað er samkeppnishæfnin þar sem finnskir bændur hafa fjárfest mikið í aukinni framleiðni og samkeppnishæfni, sérstaklega í búfjárframleiðslu. Á móti sjáum við vaxandi skautun meðal bænda. Sumum gengur mjög vel á meðan aðrir eiga í erfiðleikum og neyðast til að hætta búskap. Markaðssveiflur hafa einnig aukist verulega.“ 

Afkoma almennt stöðug en afurðaverð lækkað

Er afkoma finnskra bænda almennt betri eða verri eftir inngöngu í Evrópusambandið?

„Almennt hefur efnahagsleg staða bænda verið nokkuð stöðug, en þó heldur lakari en áður. Á bak við meðaltalstölurnar má hins vegar sjá að um 20% bænda standa sig mjög vel og betur en áður, á meðan um 20% standa mun verr. Meðaltalið segir því ekki alla söguna. Á opnum markaði þar sem opinber stefna hefur minni áhrif hafa tilhneigingar frumkvöðla og rekstraraðila til að skila misjöfnum árangri meiri áhrif og munurinn á milli þeirra eykst.“

Hefur afurðaverð hækkað eða lækkað til finnskra bænda eftir inngögnu í Evrópusambandið?

„Í flestum tilvikum hefur afurðaverð til bænda lækkað.“ 

Beinar greiðslur aukist en heildarstuðningur minnkað

Hafa styrkir til finnskra bænda aukist með inngöngunni og hvaða styrki er þá um að ræða?

„Beinar greiðslur til bænda hafa aukist verulega, bæði flatarmálstengdar greiðslur og greiðslur vegna búfjár. Heildarstuðningur hins opinbera hefur þó dregist saman, þar sem gamla finnska kerfið var mjög kostnaðarsamt fyrir skattgreiðendur.“

Hvaða áhrif hafði inngangan á hið opinbera landbúnaðarkerfi í Finnlandi, svo sem stuðningsgreiðslur til finnskra bænda, styrkjakerfið og svo framvegis?

„Áhrifin á landbúnaðarstefnuna voru gríðarleg þar sem Finnland þurfti að breyta nánast öllu. Finnsk landbúnaðarstefna var fyrir aðildina á engan hátt samræmanleg stefnu ESB. Eftir 1995 hefur Evrópusambandið einnig gert nokkrar stórar og mikilvægar umbætur á sameiginlegri landbúnaðarstefnu sinni.“

Hefur skriffinnska aukist hjá bændum eftir inngöngu í Evrópusambandið?

„Já, stjórnsýslubyrðin hefur aukist verulega og það er einmitt það sem bændur kvarta mest undan.“

Matvæli hlutfallslega ódýrari nú

Hefur matvöruverð í Finnlandi hækkað eða lækkað eftir inngöngu?

„Matvælaverð hefur hækkað að nafnvirði, en hlutfallslega eru matvæli ódýrari nú en fyrir aðildina. Almennt verja finnskir neytendur aðeins um 12% af ráðstöfunartekjum sínum til matvæla og óáfengra drykkja. Það er meðal þess lægsta sem gerist í Evrópusambandinu.“

Bændur almennt gagnrýnir en fáir vilja yfirgefa ESB 

Hafið þið hjá MTK kannað viðhorf finnskra bænda til aðildarinnar að Evrópusambandinu eftir að Finnland varð hluti af sambandinu?

„Já, við höfum gert margar rannsóknir í gegnum árin. Bændur eru almennt gagnrýnir á Evrópusambandið, en mjög fáir þeirra myndu í raun vilja yfirgefa sambandið. Eins og staðan er í dag er enginn betri kostur í boði. ESB er einnig stórt öryggismál fyrir Finnland og því er engin raunveruleg umræða um úrsögn, jafnvel meðal bænda. Þess í stað reynum við að vinna að því með uppbyggilegum hætti að gera Evrópusambandið betra.“

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...