Íslenskur fálki er sjaldgæfur varpfugl.
Íslenskur fálki er sjaldgæfur varpfugl.
Mynd / Wikipedia
Fréttir 11. september 2026

Fálkum fjölgar en eggjum rænt

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Fálkum fjölgaði um þriðjung milli áranna 2025 og 2026 á rannsóknarsvæði Náttúrufræði- stofnunar á Norðausturlandi. Eggjum var rænt úr að minnsta kosti einu hreiðri og er það alvarlegt brot á lögum.

Fálkastofninn á Norðausturlandi tekur við sér eftir mikla fækkun á síðustu árum sem talin er tengjast fuglaflensu. Rjúpnastofninn á svæðinu hefur jafnframt aldrei mælst stærri frá því að rannsóknir hófust árið 1981. Fálkarannsóknarsvæðið sem um er rætt er um 5.300 ferkílómetrar og eru þar skráð 88 fálkaóðul. Öll óðulin voru heimsótt í sumar og reyndust 35 þeirra vera í ábúð, eða 40%. Árið 2025 var ábúðin sú minnsta frá upphafi fálkatalninga. Þetta kemur fram á vef Náttúrufræðistofnunar.

24% ársgamlir fuglar

Af þeim 29 óðalsfálkum sem voru aldursgreindir í ár voru sjö, eða 24%, ársgamlir. Mjög sjaldgæft er að svo ungir fálkar helgi sér óðul en þetta háa hlutfall endurspeglar betri lifun ungfugla en undanfarna vetur og þann mikla fjölda óðala sem hefur verið í eyði. Þróun sem þessi þekkist hjá förufálkum á Bretlandseyjum og á meginlandi Evrópu þegar stofnar eru að taka við sér aftur eftir fuglaflensufaraldra.

Ungar komust úr hreiðri hjá 12 fálkapörum. Meðalfjöldi unga á óðal í ábúð var þó í slöku meðallagi fyrir gnægð rjúpna og góða tíð í varptíma. Það skýrist þó hugsanlega líka af því að stór hluti varpstofnsins var nýliðar sem höfðu ekki verpt áður. Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur og vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir í samtali að það sem sé að gerast á Norðausturlandi endurspegli allt landið og er það jákvæð þróun fyrir fálkastofninn.

Eggjarán alvarleg

Við vöktunina kom í ljós að eggjum hafði verið rænt úr einu hreiðri. Fálkinn er friðuð fuglategund og hefur verið alfriðaður á Íslandi frá árinu 1940. Óheimilt er að koma nálægt fálkahreiðri nema með leyfi frá umhverfisráðuneytinu. Eggjarán og rask á hreiðrum fálka er einnig alvarlegt þar sem fálkastofninn hefur dregist saman síðustu ár og er fyrst núna að rétta við sér aftur.

Vöktunarvél var við hreiðrið þar sem eggjum var rænt og var hún sömuleiðis tekin. „Líklegast komust eggjaræningjarnir í mynd og hafa þess vegna ákveðið að taka vélina. Það var búið að brjóta festingarnar svo það er greinilegt að vélin var tekin að ásettu ráði,“ segir Ólafur. Einnig voru ummerki um eggjarán á vettvangi við annað hreiður.

„Það er ekki bara verið að stela eggjum,“ segir Ólafur. „Allir fálkar sem berast Náttúrufræðistofnun dauðir eru gegnumlýstir til að athuga dánarorsök. Einn af hverjum fjórum fálkum sem við hõfum gegnumlýst er með skotsár. Það er „svartur markaður“ með uppsetta fálka hér á landi og þessi viðskipti fara oftar en ekki fram fyrir opnum tjöldum. Þetta er ósvinna sem þarf að taka á.“

Skylt efni: Fálkinn

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f