Nýuppteknar gulrætur úr akri bænda Akurs Organic.
Nýuppteknar gulrætur úr akri bænda Akurs Organic.
Mynd / Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir
Fréttir 26. júní 2026

Fagna eftirliti

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Bændur í lífrænni ræktun fara í gegnum árlega úttekt sem er framkvæmd af Vottunarstofunni Túni.

„Þú vilt að varan þín sé rannsökuð og þú getir sagt að hún sé í lagi. Það á að fagna eftirliti og því að það sé til gæðakerfi í landinu sem virkar,“ segir Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir. framkvæmdastjóri Akur Organic, sem framleiða lífrænt vottaðar gulrætur í Þistilfirði og eru nýbúin að ljúka árlegri úttekt á ræktunar- og vinnsluferli sínu.

Góð upplifun

Í vottunarferlinu er farið yfir alla þætti sem snúa að starfseminni. Farið er á akrana og skoðað, í verksmiðjuna, hreinsiefni og aðföng tekin út og farið yfir skráningar og umbúðir. Ferlið frá A til Ö er skoðað eins og fram kom í samtali við Ólínu.

„Lífræn ræktun snýst um rekjanleika allra aðfanga og hvað við gerum. Innfluttur fræfjöldi sem dæmi þarf að stemma við það sem við sáum. Þetta er í raun nákvæmt gæðakerfi.“ Ólína segir vottunarkerfið ekki íþyngjandi. „Ég myndi segja að þetta séu bara raunhæfar kröfur. Við höfum átt í ótrúlega góðu samstarfi við Tún, ég heyri reglulega í þeim og þau eru mjög hjálpsöm, ég hef ekkert út á Tún að setja,“ segir Ólína.

„Þetta er bara ferli eins og annað, þetta kostar okkur einhverja peninga, en varan okkar er verðmætari,“ segir Jóhannes Ingi Árnason, gulrótar- og sauðfjárbóndi á Hallgilsstöðum í Langanesbyggð, einn fjögurra eigenda Akurs Organic.

„Þetta er ákveðin sérstaða, neytendur kunna að meta vöruna,“ segir Jóhannes. Ólína segist vilja sjá auknar kröfur um merkingar á öllu íslensku grænmeti, „þá hvaða efni eru notuð í ræktuninni svo neytandinn sé meðvitaður um gæði vörunnar“. Núverandi matvælalöggjöf felur í sér að merkingar skuli vera réttar, skýrar og ekki villandi, en þar er ekki krafa um að tilgreina þurfi þau efni sem notuð eru við ræktun eða í meðhöndlun eftir uppskeru.

Ný græja prófuð í sumar

Lífrænir bændur nota ekki illgresiseyða og þurfa að beita öðrum aðferðum við illgresishreinsun en algengt er í hefðbundnum landbúnaði. Það getur verið kostnaðarsamt og tímafrekt. Ólína segir að í Danmörku sé verið að auka styrki til tækjakaupa til lífrænna bænda. „Danska ríkið er að hvetja til lífrænnar framleiðslu, jarðvegurinn þar er orðinn svo mengaður. Þeir fengu harkalegt spark í rassinn, og við endum þarna líka þegar fram líða stundir ef við gerum ekki breytingar.“

„Við erum komin núna með nýja græju sem við erum að fara að prófa í sumar,“ segir Ingi. „Klóru sem á klóra upp illgresið á milli raða og er dregin aftan í traktor. Þessi vél kom til landsins í gegnum VOR Verndun og ræktun, samtök lífrænna framleiðenda á Íslandi og okkur var boðið að prófa hana. Við höfum verið skríðandi í ökrunum að reyta sem er mikil vinna.“

Sáð er fyrir gulrótum frá miðjum maí. Bændur Akurs Organic eru bjartsýnir og gera ráð fyrir fyrstu uppskeru í byrjun september.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.