Færri og stærri býli
Fréttir 14. ágúst 2026

Færri og stærri býli

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Ingrid Rydberg, sérfræðingur hjá sænsku bændasamtökunum LRF, hélt erindi á málþingi Bændasamtakanna, Landbúnaður í evrópsku samhengi. Fyrirlestur Ingridar fjallaði um áhrif inngöngu Svía í Evrópusambandið og 30 ára reynslu þjóðarinnar á samstarfinu. Þar fjallaði hún sérstaklega um áhrif inngöngunnar á landbúnað í Svíþjóð.

Mikil áhrif á sænskan landbúnað

Ingrid segir að helstu áhrif á sænskan landbúnað við inngöngu í sambandið hafi verið að búum fækkaði töluvert og þau hafi stækkað. Til dæmis hafi orðið 12% samdráttur í mjólkurframleiðslu í Svíþjóð með inngöngu í sambandið. Mjólkurkúm hafi fækkað úr 480 þúsund í 293 þúsund. Með aukinni samkeppni á evrópumarkaði hafi verð á svína- og nautakjöti og mjólkurvörum fallið mikið. Framleiðslukostnaður á landbúnaðarvörum hafi einnig hækkað vegna staðla frá Evrópusambandandinu. Sjálfbærni Svía þegar kemur að matvælaöryggi minnkaði. Fyrir inngöngu framleiddu Svíar sjálfir um 80-90% af þeim landbúnaðarvörum sem neyttar voru innan landsins. Í dag sé það komið 50-60%. En Ingrid segir þó breytinga að vænta. 

En Ingrid nefndi einnig kosti við að ganga í sambandið. Til dæmis hafi innganga Svía leitt af sér aukinn stuðning til bænda með CAP. Hann sé nú í kringum 8-9 milljarða sænskra króna á ári. Með inngöngunni fékk Svíþjóð rödd innan sambandsins og getur þannig haft áhrif á reglugerðir. Svíþjóð fékk aðgang að stærri markaði með landbúnaðarvörur og markaðsöryggi varð meira. 

Áhrif innan sambandsins

Ingrid segir mikilvægt að áður en gengið sé að samningaborði við Evrópusambandið þurfi Ísland að vera búið að móta sér sterka stefnu um samningsatriði. Einnig sé mikilvægt að Ísland hafi mikla og sterka viðveru í Brussel, komi til inngöngu, myndi bandalög við líkt þenkjandi þjóðir og vinni þannig að hag sínum.

Ekki skuli vanmeta innleiðingarferlið sjálf komi til inngöngu. Þá sé mikilvægt, komi til inngöngu Íslands, að standa á sínu, halda samræðum opnum og færa góð rök fyrir málflutningi sínum innan sambandsins. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...