Stærstu vísundahjarðirnar í Evrópu eru í Póllandi og Belarús.
Stærstu vísundahjarðirnar í Evrópu eru í Póllandi og Belarús.
Mynd / Oscar Jablonski - Unsplash
Utan úr heimi 2. október 2026

Evrópski vísundastofninn stækkar enn

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Rúmlega 250 vísundar lifa í Tarcu-fjöllum Rúmeníu en stofninn hefur ekki verið stærri þarlendis síðan að vísundurinn var kynntur aftur inn í vistkerfið árið 2012. Helmingur dýranna fæddist og komst á legg í náttúrunni sem bendir til þess að stofninn geti viðhaldi sér sjálfur.

Evrópski vísundastofninn var á barmi útrýmingar í byrjun síðustu aldar en síðasti villti vísundurinn var skotinn árið 1927 og voru þá aðeins 54 dýr eftir í dýragörðum í heiminum. Náttúruverndarsamtök í samstarfi við vísindamenn hófu að bjarga vísundastofninum og kynna hann aftur inn í vistkerfi Evrópu allt frá árinu 1950. Stofninn stækkaði í fyrstu hægt en á síðustu 10 árum hefur hann stækkað jafnt og þétt. Í dag eru rúmlega 8.000 vísundar víðs vegar í Evrópu og stærstu hjarðirnar eru í Póllandi og Belarús.

Mörg dæmi eru um jákvæð áhrif vísunda á vistkerfin sem þeir búa í. Í Rúmeníu eru vísbendingar þess efnis að vísundahjörðin stuðli að aukinni kolefnisbindingu þar sem dýrin ganga jafnt á landið, endurvinna næringarefni sem stuðla að frjósamari jarðvegi, dreifa fræjum og þjappa jarðveginum sem kemur einnig í veg fyrir að kolefni losni út í andrúmsloftið.

Í Bretlandi hefur líffræðilegur fjölbreytileiki aukist í skóglendinu þar sem vísundahjörðin dvelur auk þess sem skógurinn hefur stækkað á ný og í Hollandi eru dæmi um að fuglar nýti sér vetrarkápur vísundanna sem þeir ganga úr á vorin til þess að byggja og fóðra hreiður sín. Á vef samtakanna Rewilding Europe, sem leiða verkefnið ásamt World Wildlife Fund (WWF), kemur fram að vísundurinn geri einnig landslagið aðgengilegra fyrir aðrar dýrategundir með sínum lifnaðarháttum.

Tegundin er þó enn á válista og þarf því að fylgjast með afdrifum og ferðum hjarðanna, setja inn ný dýr til að stuðla að heilbrigðum stofni og halda áfram að kynna nærsamfélögum vísundanna hvernig best sé að lifa í sátt og samlyndi við þennan evrópska hárprúða risa. 

Skylt efni: Evrópa | villt dýr

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f