Ein umsögn um breytingar á búvörulögum
Fréttir 13. ágúst 2026

Ein umsögn um breytingar á búvörulögum

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Ein umsögn barst í samráðsgátt um breytingar á búvörulögum og framlengingu búvörusamninga. Umsögnin er frá Samtökum iðnaðarins og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði.

Samtökin fagna áformum um framlengingu búvörusamninga til 2027 og segja það rökrétt skref að veita lengri frest og rúmt svigrúm til að vinna að sameiginlegri sýn fulltrúa landbúnaðarins og stjórnvalda á starfsumhverfi og stuðningskerfi greinarinnar til framtíðar.

Núgildandi búvörusamningar voru gerðir árið 2016 til tíu ára. Samningarnir hafa verið endurskoðaðir nokkrum sinnum á því tímabili án þess að miklar breytingar hafi orðið. Síðasta endurskoðunin fór fram 2023 og þar voru samningsaðilar sammála um að hefja samtal um starfsumhverfi landbúnaðar til framtíðar. Tvær þingsályktanir er varða landbúnað til framtíðar voru samþykktar af Alþingi það ár, matvælastefna til ársins 2040 og landbúnaðarstefna til 2040.

Framlenging á gildistíma núgildandi samninga lágmarkar óvissu fyrir innlenda matvælaframleiðslu á meðan mótun nýs samnings stendur yfir. Að mati samtakanna er mikilvægt að stjórnvöld og Bændasamtök Íslands hafi nægan tíma til að vinna að vandaðri framtíðarsýn. Samtökin leggja áherslu á fyrirsjáanleika og stöðugleika sé gætt í starfsumhverfi landbúnaðarins á meðan viðræður standa yfir. „Mikilvægt er að ekki verði farið í stórvægilegar eða íþyngjandi breytingar á rekstrar- og starfsumhverfi greinarinnar til hliðar við sjálfa búvörusamningagerðina á tímabilinu. Fyrirsjáanleiki er lykilforsenda þess að samningsaðilar nái að vinna að farsælli og sameiginlegri framtíðarsýn, landsmönnum öllum til heilla“, segir í umsögninni.

Skylt efni: Búvörusamningur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...