Ég er ostur
Mynd / ál
Skoðun 25. september 2026

Ég er ostur

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Tollflokkun á pálmaolíublönduðum mozarellaosti, sem í daglegu máli er ýmist kallaður pitsuostur eða jurtaostur, er enn og aftur komin á dagskrá þings og fjölmiðla. Málið er eins og illmenni í lélegri hryllingsmynd, því sama hvað gert er þá virðist ómögulegt að kveða það niður fyrir fullt og allt. Á endanum skríður það upp úr gröfinni til að trufla menn og dýr – og þá oftast á afar erfiðum tímapunkti.

Markaðsverndin er óumdeilt eitt af grundvallarstarfsskilyrðum íslensks landbúnaðar. Bændasamtökin hafa gengið til viðræðna við stjórnvöld um nýja búvörusamninga á þeirri forsendu að markaðsvernd yrði sérstaklega til umræðu við samningsborðið, rétt eins og viðræðuáætlunin sjálf kveður á um.

Það er síst til þess fallið að liðka fyrir viðræðum og auka traust milli aðila að stjórnvöld lýsi því annars vegar yfir að fjalla eigi um markaðsvernd í samningaviðræðunum en undirbúi svo á sama tíma einhliða breytingu sem veikir þá vernd áður en samningaviðræðunum lýkur. Slík framganga raskar forsendum viðræðnanna og er til þess fallin að grafa undan trausti milli samningsaðila.

Í samtölum formanns og framkvæmdastjóra Bændasamtakanna við atvinnuvegaráðherra og formann samninganefndar ríkisins hefur verið lögð sameiginleg áhersla á mikilvægi vinnufriðar og fyrirsjáanleika á meðan viðræður standa yfir.

Þá hafa íslensk stjórnvöld sjálf sagt við Eftirlitsstofnun Efta (ESA) að viðræður við Bændasamtök Íslands séu meðal annars ætlaðar til að fjalla um fyrirhugaðar breytingar á tollskránni og meta áhrif þeirra á innlenda framleiðendur. Stjórnvöld sögðu jafnframt að þau teldu „mikilvægt að ljúka viðræðum við Bændasamtök Íslands um fyrirhugaðar breytingar á tollskránni áður en frumvarp verði lagt fram á Alþingi“.

Það er því morgunljóst að stjórnvöld skilja vel að málið varðar grundvallarstarfsskilyrði innlendrar matvælaframleiðslu og eigi að vera hluti af viðræðum við Bændasamtök Íslands áður en tekin er ákvörðun um lagabreytingu. Ráðuneytin og ráðherrar hafa ítrekað staðfest þetta í opinberum yfirlýsingum og bréfum, sem og samtölum við fulltrúa Bændasamtakanna.

Það er algert grundvallaratriði í samningaviðræðum að traust ríki á milli samningsaðila. Fátt er betur til þess fallið að grafa undan slíku trausti þegar aðilar standa ekki við orð sín og yfirlýsingar. Það væri nógu slæmt að þurfa að standa í stappi um tollflokkun innfluttra mjólkurafurða á sama tíma og reyna á að ná samkomulagi um starfsskilyrði landbúnaðarins. En að lenda ítrekað í sama stappinu, þvert á loforð um annað, er enn þá skaðlegra.

Það sem gerir þetta mál allt enn undarlegra er að það er ekkert sem útskýrir af hverju keyra þarf málið í gegn. Engir hagsmunir eru í húfi sem ekki þola það að bíða í nokkra mánuði – í raun sé ég enga hagsmuni í húfi aðra en hagsmuni örfárra heildsala sem iða í skinninu yfir tilhugsuninni um að geta flutt inn ost fram hjá markaðsverndinni.

Ég hef sagt það, hér og annars staðar, oftar en ég hef tölu á, að stjórnvöld eru í einstakri stöðu til að móta hér með bændum starfsumhverfi sem stuðlað getur að uppbyggingu, nýsköpun, nýliðun og aukinni verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði. Þau þurfa bara að grípa tækifærið með okkur bændum.

Ég vil miklu fremur verja næstu vikum og mánuðum í slíka vinnu en í karp um pitsuost sem þykist vera jurtaostur.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...