Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum.

Þetta var ákveðið á fundi norrænu ráðherranefndarinnar í Færeyjum 10. júní síðastliðinn þar sem samstarfið var formgert. Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra sótti fundinn. Samstarfið kemur í framhaldi af Karlstad-yfirlýsingunni sem matvælaráðherrar Norðurlandanna samþykktu árið 2024 um að styrkja samstarf ríkjanna um fæðuöryggi og áfallaþol.

Áhyggjur eru af fæðuöryggi um allan heim í ljósi loftslagsbreytinga og óstöðugleika í alþjóðastjórnmálum. Þó að Ísland standi vel þegar kemur að hreinu vatni, aðgengilegum flutningskerfum og sé með öflugan sjávarútveg er Ísland háð innflutningi á lykilhráefnum til matvæla- og fóðurframleiðslu vegna legu landsins og loftslags þess. Í samantekt atvinnuvegaráðuneytisins um stöðu fæðuöryggis á Íslandi 2025 kemur fram að meira en 95% af kornvörum, ávöxtum, jurtaolíum og verulegur hluti grænmetis er innfluttur, sem og mörg lykilhráefni eins og kornfóður, áburður, olía og lyf. Þessi staða gerir Ísland viðkvæmt fyrir ytri áföllum.

Markmið samstarfsins er að tryggja öruggara matvælaframboð á Norðurlöndunum. Þetta verður meðal annars gert með því að tryggja þekkingarmiðlun og samræmingu milli landa. Samstarfið mun samanstanda af sérfræðingum með sérþekkingu á matvælaframboði og neyðarviðbúnaði þjóðanna. Verkefnið mun taka mið af sameiginlegum áskorunum og landsbundnum mun á aðfangakeðjum og framleiðslukerfum ríkjanna. Fyrsta verkefnið í þessu nýja samstarfi verður að skapa þriggja ára vinnuáætlun með tilteknum samstarfssviðum. Framtakið mun efla norrænt samstarf um leið og það mun fylla upp í mikilvægt svæðisbundið skarð á milli ESB og NATO. Markmiðið er að þetta verði fastur hluti af norrænu samstarfi frá og með árinu 2028.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.