Dýrmæt tenging milli sveitar og þéttbýlis
Bændurnir í Miðdal í Kjós hafa boðið leikskólabörnum og foreldrum þeirra í heimsóknir í áratugi. Þau segja heimsóknir af þessu tagi mikilvægar til að viðhalda tengslum borgarbúa við landbúnaðinn.
Ólöf Ósk Guðmundsdóttir segir í samtali að aðsóknin í þessar heimsóknir sé mjög mikil, en í nágrenni höfuðborgarsvæðisins séu aðeins tveir bæir sem bjóða leikskólahópum í skipulagðar heimsóknir. Löng hefð er fyrir leikskólaheimsóknum í Miðdal, en foreldrar Ólafar tóku á móti fyrstu hópunum í kringum 1990 og hafa þær verið óslitið í maí á hverju ári síðan þá, fyrir utan nokkur vor á meðan Covid gekk yfir.
„Í svona heimsóknum fá börnin tækifæri til að komast á starfandi sveitabæi og í návígi við húsdýrin í því umhverfi sem þau eru í flesta daga. Margir hafa enga tengingu við sveit og skortir því tækifæri til að komast á svona staði. Ég skynja mikinn áhuga á landbúnaði og því finnst mér mikilvægt að einhver sinni þessari eftirspurn, en ég held að þetta geti stuðlað að jákvæðara viðhorfi fólks gagnvart starfi bænda og þeim vörum sem við framleiðum.
Þó svo að þetta sé á miklum álagstíma tímum við ekki að hætta, því að við erum hrædd um að þá taki enginn annar við þessum bolta. Því væri óskandi að fleiri bændur væru til í að sýna leikskólabörnum sinn búrekstur þar sem við náum ekki að sinna öllum,“ segir Ólöf. Hún tekur fram að ef einhverjir bændur hafa áhuga á að feta í hennar spor sé þeim velkomið að spyrja hana ráða.
„Við erum uppbókuð alla þá daga sem við bjóðum fólki að koma og við gætum alveg verið að þessu mikið lengur, en fólk hefur sýnt því áhuga á að koma í apríl eða júní. Yfirleitt eru allir mjög spenntir fyrir því að koma og við sjáum að börnunum og foreldrunum finnst gaman að fá að sjá dýrin og snerta. Eins fá þau að hlaupa frjáls og leika sér í garðinum, hlöðunni og náttúrunni hérna í kring. Heimsóknirnar ganga yfirleitt mjög vel og dýrin eru fyrir löngu hætt að kippa sér upp við að hérna séu krakkar hlaupandi. Skepnurnar alast upp við þetta og eru ekki einu sinni hissa þegar fyrstu heimsóknirnar eru á vorin,“ segir Ólöf.
Hún segir heimsóknirnar alla jafna skipulagðar af foreldrafélögum og koma fjölskyldurnar á eigin bílum. Í Miðdal er blandað bú með kúm og kindum sem Ólöf rekur ásamt Hafþóri Finnbogasyni. Enn fremur eru þau með hænur, hunda og ketti ásamt því sem þau fóstruðu eina geit með kiði í vor.
