Grundartangi.
Grundartangi.
Mynd / ál
Skoðun 19. júní 2026

Bókin um hrossin á Kúludalsá

Höfundur: Sigurður Sigurðarson

– Veikindi í 19 ár, 26 fallin – líklega flúoreitrun!

Sigurður Sigurðarson, dýralæknir.

Bóndinn á Kúludalsá við Hvalfjörð, Ragnheiður Jóna Þorgrímsdóttir, hefur gefið út bókina „Barist fyrir veik hross“. Hún skrifar þar um hrossin sín. Bókin er ígildi fræðibókar. Birt eru bréfaskipti og margar tilvitnanir. Langur heimildalisti er við flesta kafla.

Veikindi hrossa hófust árið 2007. Þau voru kvalafull og ólæknandi. Í áratugi hefur hrossabúskapur verið með sama móti á Kúludalsá og hrossin oftast um 40 á bænum. Svo langt sem munað er, var nær óþekkt, að hross veiktust á Kúludalsá. Hross fóru fyrst að veikjast þar árið 2007. Þá veiktust 5 hross. Þeim fjölgaði ár frá ári og eru nú orðin 26 eftir 19 ár. Þrátt fyrir góða umönnun og hjúkrun og lækningatilraunir hefur þeim öllum þurft að farga til að stytta kvalir þeirra. Nú eru farin að sjást sömu einkenni á 27. hrossinu.

Ragnheiður lýsir í bókinni viðskiptum sínum við stofnanir og einstaklinga, sem hún leitaði ráða og aðstoðar hjá til að greina veikina og lækna. Flestir létu að því liggja að veikindin væru eigandanum sjálfum að kenna vegna offóðrunar og skorts á hreyfingum. Það mega undur heita, ef þeir, sem í blindni töldu eigandann valda veikindunum, eru ekki farnir að vitkast.

Bók Rangheiðar Jónu, bónda á Kúludalsá.

Röng sjúkdómsgreining hjá dýralækni hrossasjúkdóma

Afstaða álitsgjafa var aðallega vegna rangrar sjúkdómsgreiningar og yfirlýsinga fyrrverandi dýralæknis hrossasjúkdóma, Sigríðar Björnsdóttur, sem margir lögðu trúnað á. Hún fullyrti, að það væri sjaldgæfur efnaskiptasjúkdómur, Equine metabolic syndrome (EMS). Að sögn Ragnheiðar á Kúludalsá var Sigríður með greininguna tilbúna, þegar hún kom í hlað, áður en hún hafði séð nokkurt veikt hross. Annað kæmi ekki til álita. Ekki var þetta traustvekjandi.

Steingrímur Sigfússon, fv. ráðherra, brást einn valdhafa við ítrekaðri beiðni Ragnheiðar um rannsókn og hjálp. Sjúkdómseinkenni veiku hrossanna líktust einkennum EMS. Hross með EMS eru að því leyti ólík sjúkdóminum í hrossunum á Kúludalsá, að flest þeirra eru mjög feit vegna offóðrunar og fá litla eða enga hreyfingu af eigendum sínum. Sjúkdómurinn leggst auk þess í ættir. Ekkert af þessu á við um hrossin á Kúludalsá. Engin offóðrun, flest hrossin voru hreyfð vegna kennslu ungmenna, reiðmennsku og hestaferða. Feit hross voru fá. Þau veiktust ekki frekar en þau holdgrennri. Skyldleiki hrossanna ekki meiri en algengt er. Umhirða var til fyrirmyndar hjá foreldrum Ragnheiðar og hjá henni. Það staðfesti ég sem héraðsdýralæknir á svæðinu um skeið. Ég kom þar oft vegna sjúkdóma í kúm, en aldrei vegna sjúkdóma í hrossum, en sá þó oft heilbrigð hross á bænum. Sama segir Gunnar Gauti dýralæknir um heilsu hrossanna fyrir 2007. Hann sinnti þar í áratugi lækningum og eftirliti.

Rannsókn að ósk atvinnuvegaráðuneytis

Jakob Kristinsson, eiturefnafræðingur og prófessor og ég vorum beðnir af atvinnuvegaráðuneytinu að rannsaka veikindin. Við gerðum það í rúm 3 ár, komum þar 20-30 sinnum, tókum fjölda sýna og fylgdumst með heilsu hrossanna. Við þekktum því vel til allra aðstæðna, töldum engar líkur á EMS en aftur á móti líkur á flúoreitrun. Ekki var unnt að fullyrða um það án ítarlegri rannsóknar, vegna ófullkominnar þekkingar á flúoreitrun í hrossum. Tillögu um að fá erlenda sérfræðiaðstoð til að ljúka rannsókninni var hafnað af stjórnvöldum. Það þótti okkur undarlegt, jafnvel tilraun til þöggunar. Enginn þeirra, sem fullyrti um EMS hafði fylgst með veikum hrossum á Kúludalsá Þeir sem fullyrtu um EMS höfðu fæstir séð veik hross á Kúludalsá og enginn þeirra fylgst með veikum hrossum þar. Fullyrðingar þeirra um EMS voru því ótrúverðugar.

Hrossin fóru að veikjast árið 2007, nokkrum mánuðum eftir að bræðsluker áls sprakk í álverinu og gríðarlegt magn af flúor slapp frá verksmiðjunni út í loftið. Grundartangi er 5 kílómetrum austan Kúludalsár. Ríkjandi vindáttir austanstæðar bera reyk frá verksmiðjunni yfir bæinn og Akrafjall. Í reyknum eru eiturefni, sem verksmiðjan reynir að tempra með misjöfnum árangri. Hættulegust þeirra fyrir dýr er flúor. Flúor hækkaði mjög í umhverfinu eftir slysið og mældist 4x hærri í beinum veikra hrossa á Kúludalsá en í beinum hrossa af ómenguðum svæðum.

Álverið lét Umhverfisstofnun strax vita um slysið eins og þeim var skylt. Umhverfisstofnun brást, varaði ekki búfjáreigendur við. Þeir gátu því ekki forðað skepnum sínum undan flúorskýinu. Ragnheiður vissi ekki í 2 ár um slysið í álverinu.

Einkenni hjá veiku hrossunum á Kúludalsá

Sjúkdómseinkenni hjá veiku hrossunum á Kúludalsá eru m.a. þróttleysi, kvalir í vöðvum og liðamótum og vökvabjúgur undir húð víða um líkamann, áberandi á makka í flestum hrossanna (vökvabjúgurinn hvarf fljótt í hrossunum á Kúludalsá, en fituvefur er safnast í makka hrossa með EMS minnkar hægt).

Ragnheiður telur, að orsök veikindanna sé eitrun af völdum flúors í útblæstri frá álverinu á Grundartanga. Afskipti, afskiptaleysi, umsagnir, dómar og þögn ýmissa aðila: Umhverfisstofnunar, fárra dýralækna, Matvælastofnunar (Jón Gíslason og Sigurborg Daðadóttir) og tveggja dómstóla hafa verið vafasöm, röng og hneykslanleg vegna skeytingarleysis um veikindi hrossanna og viljaleysis til að ljúka rannsókn á sjúkdóminum.

Sömu sjúkdómseinkenni sáust í hrossum á Kiðafelli í Kjós, sem er andspænis Kúludalsá við Hvalfjörð. Bóndinn þar hefur gefist upp á hrossabúskap vegna þess. Á fleiri bæjum við Hvalfjörð hafa sömu einkenni sést.

Sem vænta má hefur hrossum á Kúludalsá fækkað. Full ástæða er til að stjórnvöld láti fara betur yfir upplýsingar og rannsókn á veikindunum hrossanna á Kúludalsá. Tilgátan um EMS, sem er oft læknanlegur sjúkdómur, stenst enga gagnrýni að dómi okkar Jakobs Kristinssonar, sem rannsökuðum veikindin. BARIST FYRIR VEIK HROSS er athyglisverð bók. Hún ætti að vera skyldulesning fyrir alla, m.a. dýralækna. Hún fæst hjá Ragnheiði og í bókabúðum. Gerð hefur verið kvikmynd af veiku hrossunum og sögunni, hún verður líklega sýnd í ríkissjónvarpinu á þessu ári. Það verður lærdómsríkt, ekki síst fyrir þá, sem berja höfði við stein, trúa á EMS en neita flúoreitrun.

Höfundur er dýralæknir.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.