Barkarbjallan er 3,2-4,5 mm á lengd og um 2 mm breið.
Barkarbjallan er 3,2-4,5 mm á lengd og um 2 mm breið.
Mynd / Erling Ólafsson
Fréttir 14. ágúst 2026

Barkarbjalla hefur numið land

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Barkarbjalla hefur fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru. Hún er í hópi alvarlegustu skaðvalda í skógarvistkerfum heimsins.

Tegundin var staðfest með DNA greiningu og niðurstöður birtar í vísindagrein. Höfundar leggja til vöktun til að fylgjast með stofnvexti og mögulegri áhættu fyrir íslenska skóga.

Meðal alvarlegustu skaðvalda

Barkarbjöllur (Hylastes cunicularius) geta valdið tjóni á barrtrjám og sumar bera með sér sveppi sem geta haft slæm áhrif á trjáheilbrigði. Þetta kemur fram í nýrri vísindagrein í tímaritinu Icelandic Agricultural and Environmental Sciences.

Bjöllurnar hafa þegar fundist á fjórum skógarsvæðum; Mógilsá, Heiðmörk, Fossvogsdal og Öskjuhlíð. Greiningin var staðfest með DNA erfðasýni. Í skýrslunni segir að lirfugöng og púpur í stofnum grenitrjáa hafi staðfest að tegundin hefði fjölgað sér og fest rætur hér á landi.

Vart hefur verið við skaða af völdum bjallanna á öllum svæðunum.

Í skýrslunni segir enn fremur að „landnám H. cunicularius vekur áhyggjur um hvaða neikvæðu vistfræðilegu og efnahagslegu áhrif þessi tegund muni hafa á unga barrskóga á Íslandi“.

Barkarbjallan á sér náttúrulegan óvin sem fannst einnig á svæðunum, Rhizophagus dispar, sem er önnur bjöllutegund.

Alþjóðlegur staðall ekki í gildi á Íslandi

Ekki er vitað hvernig bjallan barst til Íslands. Algengast er að bjöllur berist með flutningum á lifandi plöntum og innpökkunarefni úr timbri. Ísland hefur ekki innleitt alþjóðlegan staðal um plöntuheilbrigðisvottorð sem snýr að slíku innpökkunartimbri (ISPM 15) sem er notað í alþjóðaflutningum. Í skýrslunni segir að upptaka ISPM 15 myndi minnka áhættu á að skaðvaldar berist til landsins með flutningum.

Árið 1990 var lagt bann við innflutningi á ákveðnum tegundum af trjám með berki og lifandi plöntum. Engu að síður er mikið flutt inn á undanþágu af greinabúntum og trjám án róta, sem ferðast víða um borg og bí á jólum. Greinarhöfundar telja slíkan innflutning enn auka á hættuna á að skaðvaldar berist til landsins.

Að baki rannsókninni standa Brynja Hrafnkelsdóttir, Þórhildur Ísberg og Matthías S. Alfreðsson fyrir hönd Lands og skógar, Matvælastofnunar og Náttúrufræðistofnunar. Þau leggja til vöktun á tegundinni til að fylgjast með vexti stofnsins, útbreiðslu og mögulegri áhættu fyrir íslenska skóga. Þau segja enn fremur að rannsókn á náttúrulegum óvinum barkarbjallanna yrði gagnleg.

Skylt efni: Skordýr | framandi tegundir

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...