Elínborg, Bjarki og Eymundur, sem tók á móti viður- kenningunni og gestum í Kringlunni. Eygló tók á móti gestum í Vallanesi.
Elínborg, Bjarki og Eymundur, sem tók á móti viður- kenningunni og gestum í Kringlunni. Eygló tók á móti gestum í Vallanesi.
Mynd / eks
Fréttir 28. september 2026

Bændur hljóta viðurkenningu

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir, sem standa að baki Móður jörð í Vallanesi, hljóta viðurkenningu atvinnuvegaráðherra árið 2026 fyrir framúrskarandi árangur í lífrænum landbúnaði.

„Árangur þeirra verður ekki aðeins mældur í uppbyggingunni í Vallanesi, þau hafa rutt brautina í lífrænni ræktun, nýtingu staðbundinna auðlinda og fullvinnslu eigin hráefnis og þannig haft áhrif langt út fyrir eigin starfsemi,“ sagði Bjarki Pjetursson, sérfræðingur í atvinnuvega- ráðuneytinu, í ræðu sinni, sem veitti viðurkenninguna fyrir hönd ráðherra.

Eymundur hvetur áhugasama bændur í hefðbundnum búskap til að heimsækja bændur sem stunda lífræna ræktun.

Áhugasamir bændur kynni sér lífrænar aðferðir

„Með frumkvæði, þrautseigju og skýrri framtíðarsýn hafa þau byggt upp starfsemi sem hefur aukið sýnileika lífrænnar framleiðslu hér á landi og orðið öðrum fyrirmynd,“ sagði Bjarki í ræðu sinni. Enn fremur að „í Vallanesi hafa þau ekki aðeins ræktað land og framleitt mat, heldur ræktað hugmyndir, breytt viðhorfum og sýnt í verki hvaða möguleikar felast í lífrænum og sjálfbærum landbúnaði“.

Í samtali sagðist Eymundur vilja hvetja hefðbundna bændur sem eru að leyfa sér að hugsa í þessa átt, að heimsækja lífræna bændur. „Ég held að menn haldi oft að þetta sé flóknara og erfiðara en þetta er. Það er gott að tala við þá sem eru búnir að lifa af lífrænum landbúnaði í áratugi.“

Þróunin of hæg á Íslandi

Í Vallanesi hefur allt frá árinu 1989 verið stunduð lífræn ræktun á korni og grænmeti, auk fullvinnslu á matvælum, sem að stórum hluta eru ræktuð á staðnum og seld undir merkjum Móður jarðar. Í búskapnum hefur áhersla einnig verið á skógrækt og skjólbelti og sérstök áhersla á ræktun og notkun byggs til manneldis. Býlið fékk lífræna vottun árið 1995.

Eymundur segir þróunina í lífrænum landbúnaði á Íslandi vera of hæga miðað við nágrannalöndin. „Vonandi verður árangur þeirra öðrum hvatning á leið að því sameiginlega markmiði að 10% landbúnaðarlands verði lífrænt vottað árið 2040,“ sagði Bjarki í ræðu sinni.

Veiting viðurkenningarinnar og téð markmið eru hlutar af fyrstu aðgerðaáætlun stjórnvalda í lífrænum landbúnaði, en markmið Evrópusambandsins er að 25% ræktunarlands verði vottað lífrænt árið 2030.

Lífrænn landbúnaður hluti af lausninni

„Lífræn ræktun er náttúruvernd á sama tíma,“ segir Eymundur eftir móttöku viðurkenningarinnar og segir ákveðna hugarfarsbreytingu þurfa að eiga sér stað í samfélaginu.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, formaður Lífræns Íslands, sem stendur að lífræna deginum, tekur í sama streng og segir lífrænan landbúnað vera hluta af lausninni þegar mótaðar eru áætlanir til dæmis í loftslagsmálum, við verndun hafs og í meðhöndlun lífræns úrgangs. „Við erum partur af lausninni þar líka.“

Elínborg segir aðgerðaáætlun stjórnvalda vera góða, „svo lengi sem við pössum okkur að koma henni til framkvæmdar“. Hún segir að lífrænt þurfi að hugsa í stærra samhengi og nefnir loftslagsstefnu sem nú er í mótun. „Lífrænn landbúnaður getur verið markmið þar inni. Hann tikkar í box sem verið er að sækjast eftir. Við þurfum að átta okkur betur á að lífrænn landbúnaður getur haft jákvæð áhrif víða, svo sem í verndun hafs með minni útskolun af áburðarefnum og í ýmsu á sveitarstjórnarstiginu, svo sem meðhöndlun lífræns úrgangs. Þetta tengist allt,“ segir Elínborg.

Viðurkenningin var veitt á lífræna deginum sem að þessu sinni var haldinn í Kringlunni. Lífrænt Ísland stendur að deginum.

Skylt efni: lífræni dagurinn

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...