Mæðgur með T137, breytileika með mikla riðumótstöðu.
Mæðgur með T137, breytileika með mikla riðumótstöðu.
Mynd / Karólína Elísabetardóttir
Á faglegum nótum 25. júní 2026

Bændafundur um riðurannsóknir

Höfundur: Karólína Elísabetardóttir

30. júní næstkomandi verður haldinn bændafundur um riðurannsóknirnar í Húnaveri og á Zoom. Athygli er vakin á breyttri dag- og staðsetningu. 


Síðan 2021 hefur stór alþjóðlegur hópur leiðandi riðusérfræðinga unnið að því að finna brautryðjandi lausnir fyrir landið okkar - með frábærum árangri! Og ný þekking bætist enn við, til dæmis:

  • Riðunæmi: Mjög ólíkir íslenskir riðustofnar „sérhæfa“ sig í ólíkum arfgerðum - einn „ljósgrænn“ breytileiki sýnir veikleika
  • Umhverfissmit: Þrátt fyrir ítarlega sótthreinsun er smitálagið í mismunandi „riðufjárhúsum“ mjög misjafnt
  • Og margt fleira - m.a. voru skoðuð 28 smitefni úr flestum landshlutum, bornar saman 20 riðuhjarðir frá 1997 til 2023, mælt smit í fjárhúsum á 7 mismunandi riðubæjum og rannsakaðir faraldsfræðilegir áhættuþættir.

Nýjustu niðurstöðurnar verða núna kynntar opinberlega. Christine Fast, verkefnastjóri, kemur á þriðjudagskvöld, 30. júní, í félagsheimilið Húnaver í Langadal, rétt við þjóðveg 1.
Stefanía Þorgeirsdóttir, Keldum, mætir a.m.k. á Zoom, en kannski á staðinn.
Vincent Béringue, sérfræðingur í næmismælingum, mætir á Zoom.
Karólína Elísabetardóttir verður á staðnum, þýðir jafnóðum yfir á íslensku og tekur einnig saman nokkra verkþætti.

Við byrjum kl. 18 - í boði verður léttur kvöldverður, og það verður nógur tími til að tala við Christine og hina sérfræðingana. Það má spyrja og ræða allt á milli himins og jarðar sem tengist riðu. Fundurinn hentar bæði byrjendum og lengra komnum!

Nákvæm dagskrá birtist á Facebook stuttu áður.

Fundinum verður streymt.


Upptökum verður deilt 2-3 dögum eftir fundinn.


Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á vefslóðinni ridaneitakk.net til að fá hugmynd um gestafjölda svo hægt sér að gera ráðstafanir með veitingar. Síðasti skráningar frestur er 29. júní, en óhætt er að mæta án þess að vera skráður. 

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f