Aukabúnaðarþing 14. ágúst
Fréttir 25. júní 2026

Aukabúnaðarþing 14. ágúst

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir og Þröstur Helgason

Stjórn Bændasamtaka Íslands boðar til aukabúnaðarþings föstudaginn 14. ágúst 2026 á Hotel Nordica í Reykjavík. Þar verður skýrsla milliþinganefndar um áhrif mögulegrar Evrópusambandsaðildar á íslenskan landbúnað kynnt og ályktað um hana. Formaður Bændasamtakanna segist vilja tryggja skýra aðkomu félagsmanna að þessu risastóra pólitiska máli.

Á Búnaðarþingi 2026, sem var haldið í mars síðastliðnum, var samþykkt að skipa sjö manna milliþinganefnd sem starfa skyldi fram að næsta Búnaðarþingi. Nefndinni var falið að greina hverjar afleiðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu yrðu á íslenskan landbúnað, þar með talið áhrif aðlögunar að regluverki sambandsins meðan á aðildarviðræðum stæði. 

„Stjórn Bændasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að halda skuli aukabúnaðarþing Bændasamtaka Íslands 14. ágúst næstkomandi þar sem farið verður yfir niðurstöðu skýrslu milliþinganefndar og ályktað um afstöðu Bændasamtakanna gagnvart mögulegri aðild að Evrópusambandinu og þá með hagsmuni landbúnaðarins að leiðarljósi,“ segir Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands. „Sú afstaða verður ekki byggð á tilfinningum eða orðagjálfri heldur verður stuðst við skýrslu milliþinganefndar þegar afstaðan verður mótuð. Það er vandað til vinnunnar og að gerð skýrslunnar hafa komið sérfræðingar bæði innan og utan skrifstofu Bændasamtakanna. Það er mikilvægt að byggja okkar stefnumótun í þessu máli eins og öðrum á þeim lýðræðislegu ferlum sem eru innan samtakanna. Þess vegna boðum við til aukabúnaðarþings. Við viljum tryggja skýra aðkomu okkar félagsmanna að þessu risastóra pólitiska máli og hlökkum til að takast á við umræðuna og að eiga samtal bæði við okkar félagsmenn og eins almenning í landinu um það hvaða þýðingu það muni hafa fyrir framtið landbúnaðar, fæðuöryggi og byggðafestu í okkar góða landi að ganga inn í Evrópusambandið.“

Milliþinganefnd Bændasamtaka Íslands hefur verið starfandi undanfarna mánuði með aðkomu sérfræðinga innan samtakanna jafnt sem utan. Niðurstöður vinnu nefndarinnar verða lagðar fram í formi skýrslu sem verður send þingfulltrúum eigi síður en tveimur vikum fyrir boðað aukabúnaðarþing. Á þinginu verður skýrslan kynnt og tekin til umræðu með það að markmiði að álykta um efni hennar við lok þingsins.

Til aukabúnaðarþings eru boðaðir þeir aðalmenn sem voru kjörnir til setu á Búnaðarþingi 2026 þar sem kjör búnaðarþingfulltrúa og varamanna þeirra gildir milli Búnaðarþinga. Bændasamtökin biðja þingfulltrúa að taka daginn frá til að koma til Reykjavíkur og sitja þingið sem snýr að mikilvægu málefni sem snertir hagsmuni bænda í heild og getur haft áhrif á framtíðarstarfsskilyrði landbúnaðar á Íslandi. Staðfesta þarf þátttöku á aukabúnaðarþingi fyrir 1. júlí 2026. Áður en að aukabúnaðarþingið hefst er áætlað að málþing um Evrópumál og landbúnað fari fram fyrr sama dag. Málþingið verður opið öllum.  

Skylt efni: Búnaðarþing

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.