María Neves, sem er af fullum krafti að undirbúa atvinnulífssýninguna í haust með sínu fólki.
María Neves, sem er af fullum krafti að undirbúa atvinnulífssýninguna í haust með sínu fólki.
Mynd / Gunnhildur Lind
Fréttir 10. ágúst 2026

Atvinnulífssýning dagana 19. og 20. september

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Atvinnulífssýning verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðarkróki í haust eða dagana 19. og 20. september.

Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að varpa ljósi á flóru fyrirtækja og stofnana í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í sveitarfélaginu. Reiknað er með að á milli fjögur og fimm þúsund manns sæki sýninguna.

„Við hér í Skagafirði erum svo ótrúlega lánsöm að búa yfir fjölbreyttu og öflugu atvinnulífi. Smá og stór fyrirtæki eru lífæð samfélagsins og það er því ótrúlega gaman að geta búið til vettvang fyrir þessa aðila til að koma saman og kynna sig og sína þjónustu eða vöru. Á sýningunni munum við sýna flóru fyrirtækja sem styðja við grunnstoðir atvinnulífsins í Skagafirði. Þá ætlum við einnig að leggja okkur fram við að bjóða upp á málstofur þar sem einstaklingar úr öllum áttum atvinnulífsins koma saman og ræða framtíðarsýn Skagafjarðar í atvinnumálum, sérstöðu sveitarfélagsins, mikilvægi nýsköpunar og verðmætasköpunar svo fáeitt sé nefnt. Þá ætlum við einnig að bjóða upp á skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa og vera með ýmsar óvæntar uppákomur meðan á sýningunni stendur,“ segir María Neves, deildarstjóri þróunar, miðlunar og menningar hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.

Skylt efni: Skagafjörður

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...