Í tilefni afmælisins færði Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, afmælisbarninu blómvönd.
Í tilefni afmælisins færði Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, afmælisbarninu blómvönd.
Mynd / India Ása Hreinsdóttir.
Líf og starf 12. nóvember 2026

Aldarafmæli Láru Brynhildar

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Lára Brynhildur Eiríksdóttir, sem býr á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri, fagnaði 100 ára afmæli sínu 21. október síðastliðinn. Lára ólst upp í stórum systkinahóp en alls voru systurnar fimmtán, enginn bróðir.

Lára Brynhildur og ein önnur systranna eru lifandi í dag. Lára á sjálf 34 afkomendur og er hún orðin langalangalangamma. Afmælisbarnið er fætt og uppalið í Reykjavík en flutti til Akureyrar 2002 til að vera hjá dóttur sinni.

Hefur gaman af lífinu

Lára Brynhildur er mjög lífsglöð og alltaf kát og hefur aldrei reykt eða drukkið áfengi. „Já, já, ég hef mjög gaman af lífinu og nýt þess að vera til. Það er hugsað einstaklega vel um mig hér í Lögmannshlíð og hér er stórgott að vera. Ég er dugleg í handavinnu ýmiss konar og svo fylgist ég alltaf með fréttum,“ segir Lára Brynhildur.

Hún er líka á samfélagsmiðlum eins og Facebook. „Já, ég er þar en ýti stundum á vitlausa takka, það er allt í lagi, en mér finnst gaman að fylgjast með því sem er að gerast í gegnum Facebook,“ segir hún hlæjandi.

Lára Brynhildur og fjölskylda hennar ólust upp í Reykjavík og voru þar í Sogamýrinni. Hún segir að systurnar hafi alltaf verið mjög góðar vinkonur.

„Já, það vorum við, það var aldrei ósætti og allar vorum við góðar vinkonur, ég man ekki annað. Nú erum við bara tvær á lífi, ég og systir mín í Reykjavík, sem er 92 ára gömul,“ segir Lára.

Ætlar að verða 105 ára

Lára starfaði lengi í Hagkaup í Reykjavík en síðar hjá SÍBS og Reykjalundi. En hvað stefnir hún á að verða gömul? „105 ára, það er stefnan,“ segir hún og skellihlær. Lára Brynhildur á þrjú börn, tvo syni og eina dóttur og búa báðir synir hennar á Selfossi og eru þeir komnir á áttræðisaldur.

Hún fylgist vel með því sem er að gerast, hlustar og horfir daglega á fréttir og hún er einnig dugleg að prjóna, hekla og hlusta á bækur. „Ég er búin að hekla teppi handa öllum mínum afkomendum og svo er ég með heyrnartól og læt lesa fyrir mig. Þessa dagana er ég að kynnast Laxness. Ég hafði hvorki tíma né þroska fyrir það fyrr,“ segir hún hlæjandi. Foreldrar Láru Brynhildar voru þau Sigrún Kristjánsdóttir og Eiríkur Einarsson.

Skylt efni: 100 ára

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...