Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Nýja vörumerkið Æður verður kynnt á HönnunarMars.
Nýja vörumerkið Æður verður kynnt á HönnunarMars.
Mynd / Signý Jónsdóttir
Fréttir 12. maí 2026

Æðarbændur kynna fullunnar vörur

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

- Fáðu þér kríu á Hótel Holti

Vöruhönnuðir þróa nú fullunnar vörur úr eigin dúni og kynna nýtt vörumerki á HönnunarMars.

Æður er nýtt vörumerki sem Studio Erindrekar kynna á Hótel Holti á HönnunarMars sem fram fer víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu dagana 6. – 10. maí. Erindrekarnir eru Íris Indriðadóttir og Signý Jónsdóttir en þær eru vöruhönnuðir og æðarbændur.

Æður er nýtt vörumerki

Íris og Signý hafa sinnt æðarbúskap í Skálanesi í Seyðisfirði undanfarin ár ásamt Sigrúnu og Pétri sem stundað hafa æðarrækt í Skálanesi og á Melrakkasléttu í fjöldamörg ár.

Markmið Írisar og Signýjar er að fullvinna vörur úr dúninum sínum til að auka verðmætasköpun innanlands. Þær bjóða gestum að skoða vörur sínar og nýja vörumerkið, Æður, inni á hótelherberjum Holtsins á HönnunarMars. Ætlun þeirra er að veita andartakinu á milli svefns og vöku sérstaka athygli og huga að miðdegislúrnum, enda fátt betra í annríki dagsins en smá kría. Viðburðurinn fer fram föstudaginn 8. maí og laugardaginn 9. maí frá 12–17.

Verðmætt hráefni

Þekking almennings á æðardúni er takmörkuð og fáir sem lúra undir íslenskri æðardúnssæng. Ákveðin dulúð ríkir yfir æðarbúskap en æðarfuglinn var fyrstur fugla til að vera friðaður.

Æðarræktarfélag hefur verið starfrækt á Íslandi frá 1969 og er æðarrækt stunduð um nánast allt land að Suðurlandsundirlendinu undanskildu. Sambýli manna og æðarfugla er sérlega fallegt og gagnkvæmt traust myndast þeirra á milli. Fuglarnir leita í mannfólkið og njóta samlífisins og verndarinnar sem í því felst.

Landbúnaðarháskóli Íslands menntar fólk í dúnmati en sala á dúni er samkvæmt lögum háð vottun og gæðamati sem byggir alfarið á skynjun dúnmatsmannsins sem skoðar dúninn, finnur af honum ilminn, hlustar á hann og snertir. Rúmlega þrjú tonn af æðardúni eru unnin á Íslandi ár hvert en stærstur hluti hans er fluttur úr landi.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.