Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændur hafa kallað eftir lausnum og samtali við stjórnvöld um málið. Í grein um álftir í síðasta blaði kom fram í svari umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir álft væri í bígerð og að Náttúruverndarstofnun væri að vinna fyrstu skrefin í því ferli.

Umræðan kemur upp ár eftir ár í samfélagi bænda en hefur nú komist í fréttir og verið til umræðu meðal stjórnmálamanna. Álftin er friðaður fugl á Íslandi og í Evrópu. Sumir bændur hafa kallað eftir því að fá að skjóta fuglinn en Náttúrufræðistofnun hefur ítrekað sagt að slíkar breytingar sé ekki hægt að gera á lögum nema eftir ítarlega rannsóknarvinnu því slíkt þurfi að byggja á góðum rökstuðningi og þekkingu á hvaða áhrif breytingarnar hafi á stöðu tegundarinnar.

Í svari Náttúruverndarstofnunar til blaðsins segir að fyrsta skrefið í gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir álft í samræmi við áform ráðuneytisins sé verkefni sem er þegar hafið. „Í þeirri vinnu er meðal annars verið að fara yfir fyrirliggjandi upplýsingar um stofnþróun álfta og tjón af þeirra völdum í landbúnaði, auk þess sem leitað hefur verið eftir frekari gögnum um umfang og dreifingu tjónsins.“ Í svarinu segir að ljóst sé að upplýsingar um raunverulegt umfang tjóns séu takmarkaðar og að aðstæður séu mismunandi eftir svæðum.

„Því er nú til skoðunar að hefja afmarkað átaksverkefni á völdum svæðum þar sem ágangur álfta er talinn mestur. Markmiðið væri að prófa mismunandi leiðir til að draga úr tjóni, meta árangur þeirra og nýta niðurstöðurnar við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar. Ekki er útilokað að slík áætlun nái einnig til gæsa.“

Meðal þeirra úrræða sem Náttúruverndarstofnun segir að komi til skoðunar er skipulögð fæling, griðarsvæði og aðgerðir sem byggja á reynslu bænda af því að draga úr ágangi. Þá er tekið fram að alþjóðlegar rannsóknir benda til þess að samþættar aðgerðir séu almennt vænlegri til árangurs en að treysta á eina aðferð. Verið er að móta nánari útfærslu verkefnisins í samstarfi við viðkomandi ráðuneyti og aðila í landbúnaði. Stefnt er að því að fyrstu verkefnin geti hafist á næsta ári þó ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um einstakar aðgerðir eða endanlega tímaáætlun. „Markmiðið er að bregðast við þeim vanda sem bændur standa frammi fyrir, jafnframt því að tryggja að aðgerðir byggist á faglegum forsendum og samræmist verndarskyldum Íslands.“

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, sagði á fyrsta fundi í hringferð BÍ að þau væru í góðu samtali við ráðuneytið og að vonir hans og Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra væru í þá átt að árangur sjáist fljótlega og náist vonandi fyrir sumarið 2027. Ekki náðist í ráðherra við gerð fréttarinnar.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f