Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Vöndum okkur í umræðunni
Skoðun 26. júní 2026

Vöndum okkur í umræðunni

Höfundur: Trausti Hjálmarsson
Trausti Hjálmarsson.

Sólmánuður hófst í upphafi þessarar viku, tíundu viku sumars. Margir bændur stunda nú heyskap af kappi til að afla fóðurs fyrir næsta vetur eða huga að öðrum sumarverkum. Landinn er á faraldsfæti og nýtur þess að ferðast til íþróttamóta, ættarmóta eða einfaldlega til þess að eiga rólega daga fjær ysi og þysi höfuðborgarinnar.

Þetta sumar verður ólíkt mörgum öðrum, þannig styttist tíminn fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um að sækja að nýju um aðild að Evrópusambandinu og hefja viðræður. Yfirleitt hefur landsmönnum auðnast að hafa friðinn um ágreiningsmál af ýmsu tagi á sumrin. Oft er umræðan sem lygnt fjallavatn á sumarnótt. Nú virðist þó sem að hávaðinn sé meiri og umræðan fer sívaxandi um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið. Seint mun það segjast að þessi umræða sé sameinandi stef fyrir þjóðina, heldur miklu fremur sundrar hún og veldur ágreiningi.

Mikið er um bændur og landbúnað rætt í því samhengi en því fer fjarri að allt sé það skynsamlegt eða á rökum reist. Það verður að segjast að það er þreytandi til lengdar að hlusta á sum sem lítinn áhuga hafa á starfi okkar bænda stærstan hluta árs skyndilega hafa miklar skoðanir á því hvað okkur bændum eigi að finnast. Það er vissulega misjafnt mjög hvaða skoðanir bændur hafa á hinum ýmsu málum. En í sameiningu höfum við bændur ákveðið að boða til aukabúnaðarþings í ágúst þar sem bændur munu leggjast yfir áhrif aðildar að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað og komast að niðurstöðu.

Töfrar eru ekki til

Stundum virðist undirrituðum sem trú á fjölkynngi og forneskju sé útbreiddari en áður var talið. Þannig virðist að sumir telji að matvælaverð lækki um tugi prósenta við inngöngu líkt og um galdrabragð væri að ræða. Væri slíkt á rökum reist væri það skiljanlegra hversu mjög núverandi stjórnarflokkar horfa til þess að hefja viðræður við Evrópusambandið um aðild. Matvæli eru grunnþarfir hverrar fjölskyldu og ásamt þaki yfir höfuðið myndar þetta þann kostnaðargrunn sem við glímum við, bændur jafnt sem aðrir. Þetta virðist okkur í Bændasamtökunum vera sjónhverfingar, matvælaverð lækkaði um tíu prósent í Finnlandi til neytenda á meðan verð til bænda lækkuðu um fjörutíu prósent. Margir bændur hafa skiljanlega áhyggjur af umræðu þar sem það er farið eins frjálslega með staðreyndir og talað af léttúð um það að setja tekjugrunn bændafjölskyldna í landinu í uppnám. Það tek ég undir en vill jafnframt hrósa þeim fyrir heiðarleika sem segja upphátt að þeir láti sér það í léttu rúmi liggja að fórna íslenskum bændum fyrir aðild. Við vitum þá hvar við höfum viðkomandi og hvaða hug þeir bera til íslensks landbúnaðar.

Vöndum okkur í sumar

Ég legg á það áherslu að það fylgir því ábyrgð að taka þátt í þessari umræðu. Sýnum hvert öðru þá virðingu að hlusta á sjónarmið en bíðum ekki bara eftir að geta haldið áfram að tala á hinn. Veruleikinn er flókinn og ýmis rök geta búið að baki því að fólk telur að grasið sé grænna handan hafsins. Við bændur höfum ekki komið auga á þetta græna gras sem stendur. Við höfum séð og rannsakað fullyrðingar ýmissa aðila sem vilja segja okkur hvað sé best fyrir okkur. Mikið af því virðist vart standast skoðun.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt
Fréttir 9. nóvember 2026

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt

Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá áramótum og Runólfur Ólafsson, framkvæm...

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða
Fréttir 9. nóvember 2026

Betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða

„Verkefnið Mýrarlíf er sjálfstætt en fer vel með aðgerðum stjórnvalda um endurhe...

Áfram stutt við orkusparnað
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram stutt við orkusparnað

Fjárfestingaátak stjórnvalda sem miðar að orkusparnaði í gróðurhúsum garðyrkjubæ...

Kvóti verðlaunanaut
Fréttir 9. nóvember 2026

Kvóti verðlaunanaut

Hjónin Baldur Helgi Benjamínsson og Elin Nolsøe Grethardsdóttir fengu viðurkenni...

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár
Fréttir 9. nóvember 2026

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár

Rjúpnastofninn er stór í ár og einkum sterkur á Norðaustur- og Austurlandi. Nátt...

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...