Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Vísnahornið
Líf og starf 11. maí 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Þættinum barst kveðja frá Tómasi Inga Þorgrímssyni varðandi leturstærð:

Fer í taugar fínar hér,

fjandans smáa kornið.

Stend ég nú með stækkað gler,

stari á vísnahornið.

Friðrik Steingrímss. frá Grímsstöðum í Mývatnssveit má kalla kímnisskáld, hér segir frá frægu flugi á dögunum:

Hún leið frá lygnum sænum

í lágflug yfir bænum,

menn æptu´í einum grænum

af ótta á Heimaey.

Af lofti tæmdust lungu

sem lægju´und fargi þungu

og símalínur sungu,

er sigldi himinfley.

Og Friðrik sendir pillu á pólitíkina og stjórn menntamála:

Kennararnir fá í glyrnur glýgju

er geysist kerling fram með háa raust,

því Inga féll með 4,9

og fer því ekki´í gaggó næsta haust.

Ekki hlífir Friðrik heldur þeim sem eiga að hafa stjórn á veröldinni:

Þumbast enn með þekktu mynstri

þursinn Trump í heimsku sinni,

hótar öllum hægri vinstri

hér og þar í veröldinni.

Friðrik gerir fleiri mönnum skil:

Ég yrði maður að meiri

montar sig kvensami Geiri,

ef svæfi ég hjá öllum svönnum

á Dalvík og Dagverðareyri.

Gunnar J. Straumland yrkir hér aldýr sumarsléttubönd og gera fáir betur:

Nemur galsa sumars sól,

sjaldan bagar veður.

Temur kalsa, gumi gól,

galdra Braga kveður.

Sé lesið afturábak versnar spáin:

Kveður Braga galdra,

gól gumi, kalsa temur.

Veður bagar, sjaldan sól

sumars galsa nemur.

Aldýrt vor, segir skáldið snjalla Gunnar J. Straumland í fyrirsögn:

Ljómi bindur lyndisóð,

lofar nýjum degi.

Óma vindsins yndisljóð

ofar skýjavegi.

Þessi er úr óútkomnum rímum Gunnars sem gaman verður að skoða og vísan skýrir sig vel:

Roggnir hanar reigja stél,

rífa kjaft og gala.

Fyrst þeir hljóma fjarska vel,

fara svo að dala.

Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Aukin framleiðsla í september
Fréttir 6. nóvember 2026

Aukin framleiðsla í september

Framleiðsla á kindakjöti jókst um þrjú prósent í septembermánuði miðað við í fyr...

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning
Fréttir 6. nóvember 2026

Sértækur byggðakvóti hefur jákvæðari ávinning

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið stórkostlegum breytingum á síðustu áratugum,...

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar
Fréttir 6. nóvember 2026

Viðhorf almennings til sauðfjárbúskapar

Könnun á viðhorfi almennings til sauðfjárræktar stendur nú yfir. Hún er hluti af...

Verð heldur áfram að hækka
Fréttir 6. nóvember 2026

Verð heldur áfram að hækka

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 2. nóvember hélt jafnvægisverð áfram a...

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir
Fréttir 6. nóvember 2026

Fjölbreyttur hrútakostur með verndandi arfgerðir

Von er á nýrri prentaðri Hrútaskrá 16. nóvember, þar sem sauðfjárbændum verður k...

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...