Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við smölun og skýrir kynslóðaskipti með braghendur.

Ungur lengi leika fékk ég lausum hala

en nýjan dreng þarf nú að ala,

nýtan engi og fjöll að smala.


Davíð Hjálmar Haraldsson þekkir haustannir og val á kynbótahrútum og hér koma nokkrar hrútavísur:

Þokki löngum þögull er

og þekkir góða siðu,

lagðmjúkur og liðasver.

Laus er hann við riðu.


Gáskafullan veit ég Val

er vorið hlær og angar

til gamans hann á Glerárdal

grimma refi stangar.


Næturkaldan nóvember,

nýársdag, á jólum:

Kringum ærnar Ýmir fer

eins og sé á hjólum.


Hérna eru tvær stökur eftir norska skáldið Aasmund Olavson Vinje. Úr kvæði sem Magnús Ásgeirsson, frá Reykjum í Lundarreykjadal, sá mikli þýðandi, snéri á góðan veg á íslensku:

Mér þótti slæmt hve forðum fór,

er fyrst ég valt af stokki, é

g þóttist fimur, frækn og stór,

en fann að ég var hnokki.


Mér þótti slæmt er komst á kjól

og kallast vildi maður,

og fyrst mér unni falda sól

að finna, að það var daður.


Magnús Ásgeirsson var þekktur af hnyttnum þýðingum og einnig sínum vísum. Þessi gæti átt við í fjölbýli:

Á loftinu er kæti og kliður

þótt klukkan sé orðin 12.

Og þá lýstur í þanka niður

að þak mitt er annars gólf.


Benedikt Valdimarsson var fæddur á Þröm í Garðsárdal í Eyjafirði. Þessa lýsingu munu gangnamenn kannast við:

Blóm á akri blunda rótt.

Björkin nakin skelfur.

Hljóðnar klakið fugla fljótt.

Flestar klakast elfur.


Smalar á fjöllum munu eflaust þekkja slíka lýsingu sem Benedikt yrkir um, hér í annarri snilldar hringhendu:

Fýkur blað um foldar kinn.

Frostið skaðar brumið.

Hörpu glaði heimurinn

hefur staðar numið.


Trúlega vita flestir um hvern Benedikt yrkir hér:

Enn er lundin ung og spræk,

um það ber ég sanninn.

Dái ég frá Djúpalæk

drenginn, skáldið, manninn.


Matthias Jochumsson, þjóðskáldið okkar, orti margt eins og menn vita. Um Bólu-Hjálmar sem fæddur var fyrir 230 árum orti skáldið þessa:

Bólu-Hjálmar bjó í skugga

böls og gremju. Hveljur saup.

Skjól í hálmi, skarni og frugga

skáldmæringur fékk í kaup.


Ekki var Hjálmar sáttur við alla presta, eins og kunn vísa leiðir í ljós, en letragrér mun vera prestskenning:

Þarna liggur letragrér

lýðir engir sýta.

Komi nú allir hrafnar hér

hans á leiði að skíta.


Einhverjir munu hafa farið með þessa vísu Bólu-Hjálmars í huganum eftir úrslitin í atkvæðagreiðslunni á dögunum:

Mínir vinir fara fjöld,

feigðin þessa heimtar köld,

ég kem eftir, kannske í kvöld,

með klofinn hjálm og rofinn skjöld,

brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld.


Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Hringferðin hafin
Fréttir 5. nóvember 2026

Hringferðin hafin

Fyrsti fundurinn í árlegri hringferð Bændasamtaka Íslands var vel sóttur. Ferðin...

Áætlun fyrir álft í bígerð
Fréttir 5. nóvember 2026

Áætlun fyrir álft í bígerð

Álftir valda bændum tjóni árlega þar sem þær borða og skemma korn á ökrum. Bændu...

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn
Fréttir 5. nóvember 2026

Leiðir til úrbóta í gegnum landbúnaðinn

Loftslagsdagurinn var haldinn í fimmta sinn í Norðurljósasal Hörpu 28. október. ...

Nýtt varnarlínukort
Fréttir 5. nóvember 2026

Nýtt varnarlínukort

Matvælastofnun hefur gefið út nýtt og endurskoðað varnarlínukort. Kortið tekur m...

Búist við talsverðum verðhækkunum
Fréttir 5. nóvember 2026

Búist við talsverðum verðhækkunum

Áburðarsalar búast við talsverðum áburðarverðshækkunum á tilbúnum áburði fyrir n...

Fyrsta jólatréð fellt
Fréttir 5. nóvember 2026

Fyrsta jólatréð fellt

Skógræktarfélag Reykjavíkur felldi fyrstu jólatré þessa árs þann 16. október. Ei...

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...