Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Hugur okkar er með Grindvíkingum og viðbragðsaðilum okkar sem standa vaktina,
Hugur okkar er með Grindvíkingum og viðbragðsaðilum okkar sem standa vaktina,
Mynd / Óskar Andri
Af vettvangi Bændasamtakana 17. nóvember 2023

Varnir og viðbúnaður

Höfundur: Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands

Við sem þjóð höfum lifað ansi undarlega tíma á undanförnum árum. Allt almannavarna­ og forvarnarstarf með tilheyrandi æfingum er því nauðsynlegur hluti af okkar samfélagi, og því þarf að sinna í vaxandi mæli frá því sem nú er. Það hafa dæmin sýnt.

Eftir sem áður verður mönnum ætíð að vera ljóst að ekki verður séð við öllu og því mun hið óvænta ávallt koma upp þegar síst skyldi. Seint að kvöldi síðastliðins föstudag hafði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekið ákvörðun, í samráði við Almannavarnir, að rýma Grindavíkurbæ og Almannavarnir lýstu samhliða yfir neyðarstigi. Íbúum var þarna á örskammri stundu gert skylt að rýma híbýli sín og yfirgefa bæinn og samfélagið allt tók á móti þeim og var reiðubúið að veita hjálparhönd. Bændasamtökin hafa átt í góðu samstarfi við Almannavarnir, nærliggjandi sveitarfélög og félagsmenn vegna dýra í þeirra umsjá sem hefur þurft að flytja og koma í öruggt skjól. Við viljum þakka Almannavörnum fyrir þeirra aðkomu að þessum verkefnum sem flest hafa fengið farsæla lausn og unnið er áfram að öðrum með tilliti til áhættumats á svæðinu.

Hugur okkar er með Grindvíkingum og viðbragðsaðilum okkar sem standa vaktina, og er þar enginn undanskilinn, hvort sem um ræðir sjálfboðaliða eða fólk sem starfar á þeim vettvangi.

Hinn 8. nóvember síðastliðinn sótti ég aðalfund dönsku bændasamtakanna, nærri 600 manna samkomu bænda hvaðanæva af í Danmörku. Það sem vakti sérstaka athygli mína var bágt hlutfall kvenna á fundinum en þær voru innan við 2% fundarmanna. Til samanburðar voru konur 43% búnaðarþingsfulltrúa á síðasta Búnaðarþingi Bændasamtakanna sem fór fram á vordögum. Betur má ef duga skal og við þurfum að halda áfram að tryggja það að konur verði sýnilegri innan atvinnugreinarinnar og út á við, fyrir hönd atvinnugreinarinnar. Við það má síðan bæta að á aðalfundi dönsku bændasamtakanna mættu fimm ráðherrar úr þeirra ríkisstjórn og fjöldinn allur af þingmönnum.

Málefnin sem frændur okkar Danir eru að burðast einna helst með þessa dagana og komu fram á fundinum, eru ansi keimlík þeim málefnum sem við erum að kljást við í íslenskum landbúnaði. Þar fór hæst útfærsla á væntanlegum kolefnisskatti á landbúnaðarafurðir, en teikn eru á lofti um útfærslur á þeirri skattlagningu á Folketinget næsta vor. Þá var mikið rætt um einföldun regluverks og blýhúðun á innleiðingu tilskipana frá Evrópusambandinu, sem er athyglisvert þar sem Danir eru jú aðilar að Evrópusambandinu. Og líkt og íslenskir bændur hafa kollegar þeirra í Danmörku miklar áhyggjur af ásókn í landbúnaðarjarðir, þar sem ekki stendur til að hefja, eða viðhalda landbúnaðarframleiðslu, heldur sem á að nýta undir sólarsellur, vindmyllur og skógrækt. Danir standa því andspænis sveitarfélögum, líkt og við, sem ekki hafa flokkað land samkvæmt skipulagi þrátt fyrir að verkefnið sé aðkallandi og þjóðhagslega mikilvægt fyrir fæðusjálfstæði þjóðar. Þá var mikið rætt um nýliðun í greininni án þess að fundarmenn höfðu fram að færa einhverjar lausnir í þeim efnum en líkt og hérlendis lýstu fundarmenn yfir miklum áhyggjum af framtíð landbúnaðarins.

Í lok þessa leiðara, vil ég, sem fyrrum björgunarsveitarmaður, nefna mikilvægi þess að hvert og eitt okkar undirbúum viðbragð heimilisins ef hætta steðjar að og hvaða úrræði eru til staðar og hvað skuli gera til að vera viðbúin. Því þrátt fyrir að neyðarstig Almannavarna sé afmarkað við ákveðinn hluta landsins, þá munum við öll sem eitt þurfa að leggja okkar af mörkum ef hætta steðjar að. Gefum okkur því tíma til þess að athuga hvernig við getum undirbúið okkur, heimili og atvinnurekstur til að takast á við áföll. Einnig þurfum við sem bændur, að huga að sérráðstöfunum fyrir búfénað og rafmagnsleysi.

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...