Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Matvælastofnun varar við tínslu og neyslu á kræklingi.
Matvælastofnun varar við tínslu og neyslu á kræklingi.
Mynd / Andreas Trepte
Fréttir 9. júní 2026

Varað við kræklingatínslu

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Matvælastofnun varar við tínslu og neyslu á krækling sunnan og suðvestanlands. Þetta á við um tínslu á kræklingi í Hvalfirði og á öðrum vinsælum tínslusvæðum. Í tilkynningu frá MAST segir að eiturþörungar hafi fundist í miklu magni í sjósýnum í Faxaflóa og fyrir sunnan landið í árlegum vorleiðangri Hafró.

Ástæða sé til ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel, enda hafi tíðarfar í maí verði tiltölulega gott - sérstaklega suðvestanlands. Einnig er áréttað að ekki sé öruggt að treysta á munnmælin: „Það er óhætt að neyta kræklings sem tíndur er í mánuðum sem hafa „r“ í nafni sínu". Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum kræklings má nálgast á vef Matvælastofnunar.

Þegar talað er um skelfiskeitrun hefur skelfiskurinn nærst á eitruðum svifþörungum og eitrið safnast fyrir í skelfiskinum án þess að hafa áhrif á hann en eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá mönnum og öðrum dýrum sem neyta eitraðs skelfisks. Því er mikilvægt að hafa varan á ef neyta á skelfisks.

Verði fólk vart við einkenni svo sem doða eða titring við munn, ógleði, uppköst, krampa í kviðarholi, minnisleysi eða heilaþoku eftir neyslu skeldýra er viðkomandi bent á að hafa samband við heilbrigðistþjónustu og séu einkenni veruleg að hringja í neyðarlínuna 112 án tafar. 

Skylt efni: Mast | Kræklingur

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...