Horft yfir Alpana úr flugvél í maí.
Horft yfir Alpana úr flugvél í maí.
Mynd / eks
Fréttir 19. maí 2026

Norðurslóðir hitna hraðast

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Evrópa er sú heimsálfa sem hitnar hraðast og hitabylgjur teygja sig úr Miðjarðarhafinu til norðurslóða.

Ný skýrsla segir hitastig í yfirborði sjávar aldrei hafa verið hærra, gróðurelda skæðari og vatnsmagn áa minna. Hitastig hefur hækkað mest á norðurslóðum á undanförnum 30 árum og met voru slegin í hitabylgjum á landi og sjó.

Hitastig yfir meðallagi í nær allri Evrópu

Köldustu svæði Evrópu hitna mest og þeirra á meðal norðurslóðir og alparnir á meginlandinu þar sem snjór og ís leika lykilhlutverk í að hægja á loftslagsbreytingum með því að endurvarpa geislum sólar frá jörðinni.

Hitastig hefur hækkað um 0,75°C á norðurslóðum á hverjum áratug undanfarinna 30 ára. Til samanburðar hefur hitastig í Evrópu hækkað um 0,56°C og á heimsvísu 0,27°C á áratug undanfarna þrjá áratugi.

Á 95% landsvæða Evrópu mældist hitastig yfir meðallagi á árinu 2025 og endurteknar hitabylgjur sem náðu methæðum mældust allt frá Miðjarðarhafinu og til norðurheimskautsins. Sem dæmi mældist hiti í Frosta í Noregi, skammt frá Þrándheimi 34,9°C í júlí.

Svæði þar sem frost mælist á vetrardögum minnkar og lágmarkshitastig var yfir meðallagi stærstan hluta ársins.

Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) og Evrópsku miðstöðvarinnar fyrir meðallangtíma veðurspár (ECMWF) um stöðu loftslagsmála í Evrópu á árinu 2025, sem kom út í lok apríl. ECMWF er sjálfstæð rannsóknarstofnun studd af mörgum Evrópuþjóðum og talin gefa út áreiðanlegustu veðurspálíkön heims.

„Árið 2025 urðu verstu hitabylgjur sem mælst hafa sunnan norðurslóða í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, þar sem hiti mældist yfir 30°C 21 dag í röð. Skýrslan frá 2025 býður upp á skýra og nothæfa innsýn til að styðja við stefnumótun og hjálpa almenningi að skilja betur breytingar á loftslaginu sem við búum við,“ segir Florian Pappenberger, forstjóri ECMWF.

Hlýnandi yfirborð sjávar

Hitastig yfirborðs sjávar í Evrópu hefur aldrei verið hærra, fjórða árið í röð, segir í skýrslunni, sem sameinar vinnu um 100 vísindamanna og stofnana og veitir ítarlegt yfirlit yfir helstu breytingar á loftslagsvísum fyrir Evrópu, hraðast hlýnandi heimsálfuna, þar á meðal köld svæði, vistkerfi sjávar, ár og vötn, hættu á skógareldum og fleira.

Höf heimsins geyma um 90% af umframhita sem losun gróðurhúsalofttegunda af mannvöldum veldur. Hlýnun sjávar hefur neikvæð áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika og búsvæði í sjónum. Hitabylgjur sjávar voru útbreiddar árið 2025 og höfðu áhrif á 86% af hafsvæðum Evrópu. Þær voru einnig öflugri og á 36% svæða voru aðstæður metnar „alvarlegar“ eða „öfgakenndar“, sem er hæsta hlutfall sem skráð hefur verið.

„Sameiginlegt átak okkar til að framleiða European State of the Climate, endurspeglar hvernig loftslagsbreytingar hafa áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika og djörf verkefni sem evrópskir stjórnmálamenn hafa gripið til til að vernda hann og endurheimta,“ segir Celeste Saulo, aðalritari Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar.

Eldar brenna og jöklar bráðna

Aldrei hafa jafnstór landsvæði orðið eldum að bráð og árið 2025 á sama tíma og vatnsstraumur í 70% áa mældist undir meðallagi yfir árið. Árið 2025 var eitt þriggja þurrustu ára frá 1992 með tilliti til jarðvegsraka.

Heit og þurr veðurskilyrði höfðu áhrif á að mestu gróðureldar til þessa geisuðu í Evrópu. 1,034,550 hektarar brunnu á árinu, landsvæði stærra en Kýpur. Miklir skógareldar geisuðu á Spáni, Bretlandi, Hollandi og Þýskalandi auk Kýpur.

Jöklar á Íslandi hafa aðeins einu sinni áður minnkað jafnmikið á einu ári og Grænlandsísinn minnkaði um 139 milljarða tonna, magn sem svipar til alls íss sem fyrirfinnst í jöklum alpanna á meginlandinu.

Dušan Chrenek er aðalráðgjafi Digital Green Transition hjá DG Clima og segir um niðurstöðurnar að skýrslan veiti sannfærandi sönnunargögn um djúpstæð áhrif loftslagsbreytinga á lífríki og efnahagslíf. „Skýrslan er skýr áminning um að við verðum að halda áfram og flýta fyrir bæði aðlögunar- og mótvægisaðgerðum.“  

Skylt efni: loftslagsbreytingar

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...