Meirihluti fiskafla Noregs er fluttur úr landi, á meðan yfir helmingur þess matar sem Norðmenn neyta er innfluttur.
Meirihluti fiskafla Noregs er fluttur úr landi, á meðan yfir helmingur þess matar sem Norðmenn neyta er innfluttur.
Mynd / Ferdinand Stöhr - Unsplash
Fréttir 19. maí 2026

Norðmenn geti ekki reitt sig eingöngu á fisk

Höfundur: Þröstur Helgason

Þrátt fyrir að Noregur sé ein stærsta fiskveiðiþjóð heims er þjóðin ekki í þeirri stöðu að geta einfaldlega reitt sig á fisk ef alvarleg kreppa eða átök skapast. Þetta skrifa Nils Gunnar Kvamsø, forstjóri norsku hafrannsóknastofnunarinnar, og Cecilie Hansen, vísindamaður við sömu stofnun, í grein í Bergenske Tidende.

Þau benda á að norskt fæðu- og orkuöryggi einkennist af ýmsum mótsögnum. Meirihluti fiskafla landsins er fluttur úr landi, á meðan yfir helmingur þess matar sem Norðmenn neyta er innfluttur. Þrátt fyrir mikla olíuvinnslu hefur landið aðeins eina olíuhreinsunarstöð og er háð innflutningi eldsneytis. Markviss árás gæti lamað hreinsunarstöðina og við eldsneytisskort yrðu hernaðarlegum þörfum forgangsraðað fram yfir aðra starfsemi, svo sem fiskveiðar.

Höfundarnir minna jafnframt á að þótt Noregur sé leiðandi á heimsvísu í fiskeldi sé megnið af fóðurefnum innflutt. Nauðsynleg næringarefni í eldislax koma meðal annars frá Kína. Það þurfi því ekki mikið til að rjúfa aðfangakeðjur sem hefði alvarlegar afleiðingar í kreppu.

Heildarviðbúnaður nauðsynlegur

Kvamsø og Hansen leggja áherslu á að viðnámsþróttur samfélagsins í kreppu eða stríði snúist ekki einungis um hernaðarlegan viðbúnað. Hann byggist einnig á getu borgaralegs samfélags til að styðja herinn, halda uppi samfélagslegum grunnstoðum og tryggja aðgengi að vatni, lyfjum og mat. Um sé að ræða heildarviðbúnað.

Þau segja að kalt stríð eða jafnvel vopnuð átök í Noregi eða nærliggjandi hafsvæðum séu ekki lengur óraunhæfar sviðsmyndir. Öryggispólitísk staða landsins sé ófyrirsjáanlegri en lengi hafi verið og því þurfi áætlun um sjálfsafla sem taki mið af því hvernig átök og kreppur geta haft áhrif á hafsvæði landsins og aðgang að mat úr sjó.

Áhrif stríðs á vistkerfi Barentshafs

Haffræðingar og varnarfræðingar hafa metið svæðisbundin áhrif kalds stríðs eða vopnaðra átaka á vistkerfi Barentshafs. Þar eru meðal mikilvægustu fiskistofna heims og bæði Norðmenn og Rússar hafa stundað veiðar þar í um þúsund ár.

Greiningarnar sýna ákveðna mótsögn. Fyrir líf í sjónum gæti heitt stríð reynst skárra en kalt stríð, að því gefnu að ekki fylgi umfangsmikil mengun á borð við geislun eða olíuleka. Í vopnuðum átökum myndi aukin hernaðarstarfsemi leiða til þess að borgaraleg umferð á hafi dregst verulega saman. Veiðar myndu minnka, olíu- og gasvinnsla dragast saman, ferðamenn hyrfu og siglingar minnkuðu. Í reynd yrði stór hluti Barentshafs að eins konar óviljandi friðlýstu hafsvæði. Höfundarnir vísa til reynslu seinni heimsstyrjaldar, þegar fimm ár án fiskveiða leiddu til verulegrar uppbyggingar fiskistofna.

Kalt stríð verri kostur fyrir hafið

Við kalt stríð, þar sem samkeppni eykst án vopnaðra átaka, verði staðan hins vegar allt önnur. Þá verði sókn í auðlindir tekin fram yfir umhverfisvernd, samvinnu um kvóta og sjálfbæra nýtingu. Veiddar yrðu fleiri tegundir, lægra í fæðukeðjunni, og sótt í ný svæði þegar ís hopar. Hafsbotnsnám, aukin orkuvinnsla og áhersla á olíu- og gasleit fylgi í kjölfarið.

Höfundarnir segja slíka þróun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir vistkerfið. Í slíku ástandi hugsi hver um sitt og hagsmunir heildarinnar víki. Því sé mikilvægt að horfa út fyrir eigin hagsmuni við skipulagningu og undirbúning fyrir mismunandi sviðsmyndir.

Að þeirra mati muni góð stjórnun strand- og hafsvæða og heilbrigð, sjálfbær vistkerfi alltaf þjóna landinu, líka í kreppu. Það geti komið að því að matur skipti öllu og þá sé mikilvægt að eiga vel búið matarforðabúr rétt fyrir utan bryggjukantinn.

Skylt efni: fæðuöryggi | Noregur

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...