Þrýstipottur og nautarif
Mynd / Hafliði Halldórsson
Matarkrókurinn 21. apríl 2026

Þrýstipottur og nautarif

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Þrýstipottur er afar handhægt tæki sem að mínu viti á heima í öllum eldhúsum og voru ansi víða til hér einu sinni. Með þrýstipotti má elda hratt bita sem annars þurfa afar langan eldunartíma, tryggja góða niðurstöðu og spara tíma og bætir nýtingu á hráefnum og eykur notkunarmöguleika á seigum kjötbitum. Tímasparnaður er oft miðaður við helmingun hefðbundins suðutíma, en getur verið enn meiri.

Þrýstipottur.

Tæknin er einföld, potturinn er með öryggisloki, þéttlokaður með hráefnum og vökva s.s. kjötsoði eða vatni, potturinn hitnar í allt að 120 °C og þá myndast háþrýstingur sem flýtir fyrir eldun. Eldun á kjöti í þrýstipotti gefur mjúka, bragðgóða bita, auk þess gefur aðferðin okkur hratt soð eða sósugrunn og er oft notuð við soðgerð þegar bein og grænmeti er soðið í pottinum. Best er að nota aðferðina á þá bita sem eru seigir og þurfa langa eldun eins og t.d. nautarif, skankar og fleiri slíkir bitar. Ekki fyrir bita eins og lundir, hryggvöðva eða aðra bita sem við flest eldum minna. Varist að fylla þrýstipott aldrei meira en að tveimur þriðju þar sem gufan þarf ákveðið rými. Á pottinum er ventill sem stýrir því hversu mikil gufa kemst út og hefur alla jafna þrjár stillingar sem er mikilvægt að skilja og fylgja samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda. Í lok eldunartíma þarf að gæta þess að opna ekki pottinn fyrr en hann hefur kólnað nóg og þrýstingurinn hefur slaknað. Það má líka færa pottinn (lokaðan) í vaskinn og kæla í vatni til að flýta hér fyrir. Þrýstipotta má finna í ýmsum góðum verslunum, t.d. hjá vinsælli búð í Garðabæ sem er best þekkt af sölu húsgagna.

Ef við hugum svo að praktíkinni þá keypti ég flott nautarif á Matarmarkaði Íslands fyrir skemmstu, beint frá bónda auðvitað, og þegar heim var komið gat ég haft rifin strax í kvöldmat þar sem eldunartíminn var innan við tvær klst. í heildina þar sem ég notaði þrýstipottinn. En hefði tekið mig minnst 4–6 tíma með hefðbundinni aðferð í ofninum á lágum hita. Ég læt þessa einföldu uppskrift frá sunnudegi í mars fljóta hér með.

Nautarif elduð í þrýstipotti

1,5 kg nautarif

salt

pipar

matarolía

½ hvítlaukur, skorinn í tvennt

1 laukur

2 lárviðarlauf

1 msk. timjan þurrkað

1 msk. kóríanderfræ

3 dl rauðvín (má sleppa)

1 l nautasoð (má nota vatn)

3 msk. eplaedik

Byrjið á að salta nautarifin ríkulega og brúna í 180 °C heitum ofni í 30 mínútur. Hitið þrýstipottinn án loks, skerið laukinn í sneiðar og svitið í pottinum með hvítlauk, olíu og öllu kryddinu. Bætið öllum vökvanum í pottinn ásamt nautarifjum, lokið pottinum og náið upp suðu/þrýsingi og lækkið svo hitann. Sjóðið í 60 mínútur, slökkvið svo undir og hleypið gufu út með ventlinum, kælið pottinn, opnið varlega og fjarlægið rifin, sigtið soðið í annan pott og sjóðið niður fyrir sósu.

Ef þið eigið ekki þrýstipott þá mæli ég með eftirfarandi, allt ferlið er það sama nema að þið setjið allt í ofnfast mót og lokið með álpappír, eða ofnpott með loki og eldið í ofninum á 90 °C í 6 klst. eða á 120 °C í 4 klst.

Rauðvínssósa með soja og hunangi

Soðið úr pottinum, um 1 lítri

½ dl sojasósa

2 msk. hunang

rauðvínsedik

Sjóðið soðið niður eftir smekk og smakkið til með sojasósu, hunangi og ediki. Markmiðið er að hún verði þykk og bragðmikil með ögn af súrsætum keim.

Ristaðir kartöflubátar

3 bökunarkartöflur

matarolía

salt

Skerið kartöflur í báta og leggið í kalt vatn. Takið víðan pott og sjóðið upp á vatni og saltið ríkulega, forsjóðið kartöflurnar þar til þær eru næstum eldaðar í gegn. Sigtið og látið á ofnskúffu, penslið með olíu og ristið í ofni á 180 °C í 20 mínútur.

Rauðkálssalat

rauðkál

gulrætur

blaðlaukur, hvíti hlutinn

rauðvínsedik

salt

matarolía

Svona salat má gera án nákvæmrar uppskriftar eða hlutfalla af grænmeti, skerið grænmetið í þunnar sneiðar. Ágætt viðmið er að hafa um 1 lítra af skornu grænmeti sem þið bætið 1 dl af ediki og 2 msk. af matarolíu við og saltið eftir smekk. Best að fái að standa á borði í 15 mínútur áður en þið berið fram. Tilvalið að gera í magni og geyma í kæli í 2–3 vikur.

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor
Fréttir 21. apríl 2026

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor

Nýlega kom fyrsti kálfur vorsins í heiminn hjá Nautís á Stóra-Ármóti í Flóahrepp...

Virði trjáa í þéttbýli
Fréttir 21. apríl 2026

Virði trjáa í þéttbýli

Hægt er að meta virði trjáa með ólíkum matskerfum sem byggja á mælanlegum og hug...

Skeifudagurinn og sumardagurinn fyrsti á Hvanneyri
Fréttir 21. apríl 2026

Skeifudagurinn og sumardagurinn fyrsti á Hvanneyri

Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, verður Skeifudagurinn á Mið-Fossum í Borgarfirð...

Stofnun atvinnuveganna í stað Matvælastofnunar og Fiskistofu
Fréttir 20. apríl 2026

Stofnun atvinnuveganna í stað Matvælastofnunar og Fiskistofu

Í frumvarpi atvinnuvegaráðherra, sem er til meðferðar á Alþingi eftir umsagnafer...

Útflutningur á heimilisúrgangi beint frá Akureyri
Fréttir 20. apríl 2026

Útflutningur á heimilisúrgangi beint frá Akureyri

Nýlega opnaði Íslenska gámafélagið nýjar starfsstöðvar sínar á Ægisnesi 3 á Akur...

Bjart yfir í Garðyrkjuskólanum
Fréttir 20. apríl 2026

Bjart yfir í Garðyrkjuskólanum

Árleg hátíðahöld í tilefni af komu sumars fara fram í Garðyrkjuskólanum, FSu á R...

Kjarnaborun vegna Eyjaganga
Fréttir 20. apríl 2026

Kjarnaborun vegna Eyjaganga

Fyrirtækið Eyjagöng ehf. hefur óskað eftir því við sveitarstjórn Rangárþings eys...

Matarkista Breiðafjarðar í Króksfjarðarnesi
Fréttir 20. apríl 2026

Matarkista Breiðafjarðar í Króksfjarðarnesi

Nýlega fékk nýsköpunarverkefnið Matarkista Breiðafjarðar 20 milljóna styrk úr út...