Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Þröstur Helgason.
Þröstur Helgason.
Fréttir 21. febrúar 2025

Þröstur ráðinn ritstjóri

Þröstur Helgason hefur verið ráðinn sem ritstjóri Bændablaðsins og mun hann taka við ritstjórn miðilsins á næstu vikum.

Þröstur á að baki langan feril í blaðamennsku, ritstjórn og stjórnun fjölmiðla. Hann var dagskrárstjóri Rásar 1 á RÚV í níu ár en lauk störfum þar í mars 2023. Áður starfaði hann sem blaðamaður á Morgunblaðinu um árabil, þar af sem ritstjóri Lesbókar árin 2001 til 2009. Hann hefur komið að útgáfustarfsemi með ýmsum hætti og síðustu tvö ár rekið bókaforlagið KIND útgáfu. Þröstur er með doktorspróf í almennri bókmenntafræði og hefur sinnt kennslu við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, auk þess sem hann er höfundur þriggja bóka.

Þröstur segist spenntur að taka við Bændablaðinu: „Bændablaðið er traust og gott blað með mikinn lestur. Ég hlakka til að halda áfram því frábæra starfi sem þarna hefur verið unnið undanfarin ár. Mér finnst vinsældir blaðsins segja mikið um þann góða hug sem landsmenn bera til bænda og málefna landsbyggðarinnar. Mér þykir afar vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt með þessari ráðningu og hlakka til að taka við þessu frábæra blaði.“

Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, segir samtökin hlakka til að starfa með Þresti. „Við kveðjum Guðrúnu Huldu Pálsdóttur, fráfarandi ritstjóra, með söknuði. Hún hefur unnið afar öflugt starf í þágu fjölmiðilsins og leitt á þann málsmetandi stað sem Bændablaðið er í dag, sem mest lesni prentmiðill landsins. Ásýnd og hróður Bændablaðsins hefur aldrei verið meiri enda hafa efnistök og gæði blaðsins orðið enn betri á síðustu árum. Ég óska henni velfarnaðar í sínum framtíðarverkefnum. Það er því afar mikill fengur fyrir Bændasamtökin að fá jafn reynslumikinn mann eins og Þröst til starfa. Við bjóðum hann velkominn til starfa og erum sannfærð um að Þröstur muni gera gott blað enn betra. Þekking hans og reynsla í störfum sínum á fjölmiðlum mun nýtast í að efla umræðuna um landbúnaðinn og landsbyggðina.“

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...