Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Frá undirritun samnings um ljósleiðaravæðingu í Húnaþingi vestra, Blöndu­ósbæ og Húnavatnshreppi annars vegar og fjarskiptasjóðs hins vegar.
Frá undirritun samnings um ljósleiðaravæðingu í Húnaþingi vestra, Blöndu­ósbæ og Húnavatnshreppi annars vegar og fjarskiptasjóðs hins vegar.
Fréttir 25. maí 2016

Styrkir til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Húnaþing vestra, Blönduósbær og Húnavatnshreppur eru á meðal fjórtán sveitarfélaga sem fá 450 milljóna króna styrk til uppbyggingar ljósleiðara í sveitarfélögunum til að efla fjarskiptasamband í dreifðum byggðum sem markaðurinn sinnir ekki. 
 
Fulltrúar fjarskiptasjóðs, nokkurra sveitarfélaga og innanríkisráðherra hafa skrifað undir samning um styrkinn. 
 
Alls fá 14 sveitarfélög styrki til að tengja um 900 staði með ljósleiðara og um 200 staði með ídráttarröri fyrir ljósleiðara sem kosta mun alls 450 milljónir króna. Meðalkostnaður ríkisins á hvern stað eru rúmar 400 þúsund krónur. 
 
Sveitarfélög sem fá styrk eru Borgarbyggð, Húnaþing vestra, Súðavíkurhreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Norðurþing, Fljótsdalshérað, Svalbarðshreppur, Þingeyjarsveit, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Kjósarhreppur.
Styrkupphæðir til hvers og eins sveitarfélags eru mjög misháar, allt frá rúmum fjórum milljónum króna og upp í yfir 100 milljónir og markast af fjölda staða sem tengja á og umfangi verkefnisins. Gert er ráð fyrir að vinna við tengingarnar fari fljótlega af stað enda hafa sveitarfélögin þegar undirbúið verkið að nokkru leyti.
 
Ólöf Nordal innanríkisráðherra, Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður fjarskiptasjóðs, og þingmennirnir Haraldur Benediktsson og Páll Jóhann Pálsson voru viðstaddir undirritun samningsins. Haraldur og Páll Jóhann voru í starfshópi ráðherra um alþjónustu í fjarskiptum og útbreiðslu háhraða nettenginga og var sá fyrrnefndi formaður hópsins.
 
Átakið hafið með krafti
 
Innanríkisráðherra sagði við þetta tækifæri að uppbygging fjarskiptakerfa utan markaðssvæða og þá einkum ljósleiðara í dreifbýli væri eitt af markmiðum stjórnvalda sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Undirbúningur þessa verkefnis hefði staðið yfir í nokkur misseri og nú hæfist átakið af krafti. Ljósleiðaravæðing tryggi íbúum í dreifbýli netaðgang, styrki þróun byggðanna, efli atvinnulíf og geri þau betur í stakk búin til að rækja hlutverk sitt. Ráðherra sagði ljósleiðaratengingu hluta af nútímanum og nauðsynlegt að landsmenn geti setið við sama borð í þeim efnum. Með ljósleiðara væri grunnkerfi fjarskipta endurnýjað og þakkaði ráðherra fulltrúum sveitarfélaga fyrir þátt þeirra og áhuga á verkefninu.
 
 
Netsamband ráðandi þáttur í vali um búsetu
 
Fram hefur komið í samskiptum við sveitarstjóra í tengslum við undirbúning verksins að áframhaldandi ljósleiðaravæðing um land allt hefði jákvæð áhrif á byggðaþróun og atvinnulíf, ýtti undir fjölgun starfa og dragi úr fækkun fólks í dreifbýli. Þannig væri unnt að auka fjölbreytni atvinnutækifæra og styrkja sveitarfélög og gera þau betur í stakk búin til að sinna hlutverki sínu. Einnig kæmi æ skýrar í ljós að netsamband væri ráðandi þáttur í vali um búsetu og hefði einnig áhrif á verð eigna í dreifbýli.
Við athöfnina sögðu þeir Haraldur og Páll að þessi aðferð, að úthluta fjármagni eftir samkeppni, tryggði að hægt væri að ná stórum áföngum og hraða uppbyggingunni og lýstu þeir ánægju með samstarfið við fjarskiptasjóð og innanríkisráðuneytið. Fram undan væri að ræða reynsluna af útboðsferlinu, ræða við sveitarfélög og landshlutasamtök og auglýsa næstu áfanga í verkefninu. Frá þessu er sagt á vefnum huni.is. 
Sama sláturhús sektað þrisvar
Fréttir 17. maí 2024

Sama sláturhús sektað þrisvar

Matvælastofnun (MAST) hefur þrisvar sinnum á þessu ári lagt stjórnvaldssekt á sv...

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna
Fréttir 17. maí 2024

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna

Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga af rekstri félagsins á árinu 2023 reyndist rúml...

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...