Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Steiktur karfi með risotto, sveppum, vorlauk og ertum
Mynd / Aðsend
Matarkrókurinn 14. mars 2026

Steiktur karfi með risotto, sveppum, vorlauk og ertum

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Karfi er afbragðsgóður fiskur, þéttur í sér, heldur vel forminu eftir eldun og er sérstaklega góður með roðinu þegar hann er pönnusteiktur, þ.e. ef hreistrið hefur verið skafið af fyrir eldun. Við byrjum hér á meðlætinu, risotto og tómatsalati, sem tekur lengstan tíma og endum á því að steikja fiskinn. Svo fylgir hugmynd að kannski einfaldasta eftirrétti í heimi sem er tilvalinn fyrir börnin að spreyta sig á.

Risotto með sveppum, vorlauk og ertum

  • 1,5 l grænmetissoð
  • 1 laukur saxaður
  • 4-5 sveppir sneiddir
  • 2 vorlaukar, saxaðir
  • 1 bolli frosnar ertur
  • ½ dl ólífuolía
  • 3 bollar arborio risotto grjón
  • 3 msk. graslaukur saxaður
  • 200 g rifinn Feykir
  • salt og pipar

Hitið grænmetissoð að suðu, og hitið olíuna í víðum potti, svitið laukinn þar til hann er mjúkur, bætið grjónunum saman við og hrærið stöðugt í 1-2 mín., bætið þá ¼ af heitu soðinu saman við og sjóðið þar til soðið er horfið. Hrærið stöðugt á meðan. Bætið síðan meira soði út í og sjóðið áfram og hrærið, það tekur um 15-20 mín. að elda grjónin þar til þau eru passlega elduð „al dente“ og þá er grænmetinu bætt út í ásamt afganginum af soðinu og sjóðið áfram þar til grænmetið er hæfilega eldað, hrærið þá ostinum og söxuðum jurtum í og berið fram. Til að „íslenska“ þessa uppskrift er tilvalið að skipta hrísgrjónunum út fyrir perlubygg sem er alíslenskt og fæst víða.

Ferskt salat með bökuðum smá- tómötum og fetaosti

  • Gott ferskt salat
  • smátómatar
  • flögusalt
  • ögn af flórsykri
  • Fetaostur ólífuolía
  • gott edik
  • ristuð graskersfræ

Byrjið á að setja tómatana í eldfastan bakka sem hæfir magninu, má s.s. ekki vera of stór, stráið ögn af flórsykri yfir, saltið og setjið síðast skvettu af ólífuolíu. Bakið í ofni á 130 gráðum í 20 mínútur. Skolið og þerrið salatið og rífið niður eftir smekk, dreifið á bakka, eða víða skál og rífið Fetaost yfir. Bætið tómötum, graskersfræjum, ólífuolíu og ögn af ediki við. Nú eða klassískri franskri salatdressingu sem tekur enga stund að laga.

Steiktur karfi

  • 4 karfaflök
  • matarolía
  • smjör
  • salt
  • sítróna

Ef þið fáið heilan karfa eða a.m.k. flök með roðinu mæli ég með því að „hreistra“ flökin þ.e. að skafa hreistrið af roðinu og skera síðan hárfínt í roðið fyrir steikingu á um 1 cm millibili. Hitið pönnu og saltið fiskinn á báðum hliðum, steikið í olíu með roðið niður á meðalhita þar til fiskurinn er nánast eldaður í gegn, bætið smjörklípu á pönnuna og snúið þá og eldið í örstuttan tíma og takið af pönnunni. Rífið ögn af sítrónuberki yfir fiskinn og kreistið ögn af safa yfir, berið fram með risotto, salati og hér er svo auðvitað tilvalið að setja skvettu af góðri ólífuolíu með á diskinn.

Bökuð epli með kardimommujógúrt

  • 6 græn epli
  • 2 msk. kanelduft
  • 2 msk. sykur
  • 100 g smjör
  • 4 dósir hrein jógúrt
  • 2 msk. grænar kardimommur
  • sítrónusafi

Þetta er sennilega einfaldasti eftirréttur í heimi. Eplin eru skræld og skorin í tvennt og kjarnhreinsuð, lögð í eldfast mót og kanelsykrinum stráð yfir. Smjörklípa sett yfir hvert epli og bakað í 10 mín. á 180 °C. Kardimommur eru steyttar í morteli (eða notið tilbúið duft) og blandað í jógúrt, smakkað til með sítrónusafa og borið fram með eplunum.

Skylt efni: matarkrókur | uppskrift | Karfi | fiskur

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...