Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Frá og með áramótum eru ökumenn snjósleða, fjórhjóla og torfærumótorhjóla ótryggðir með öllu lendi þeir í slysi við notkun tækjanna.
Frá og með áramótum eru ökumenn snjósleða, fjórhjóla og torfærumótorhjóla ótryggðir með öllu lendi þeir í slysi við notkun tækjanna.
Mynd / BBL
Skoðun 5. desember 2019

Varúð! Afturför í tryggingarvernd

Höfundur: Óðinn Elísson, lögmaður hjá Fulltingi

Nú um áramótin taka gildi ný lög um ökutækjatryggingar. Þar er afnumin sú skylda eigenda torfærutækja, snjósleða, fjórhjóla og torfærumótorhjóla að tryggja ökumenn tækjanna sérstaklega. Sú skylda hefur verið við lýði síðan árið 1988 og voru helstu rök fyrir þeirri skyldu þau að hættueiginleikar allra vélknúinna ökutækja væru svo miklir að eðlilegt væri að slysatryggingar ökumanna þeirra væru lögbundnar og bótagreiðslur færu eftir reglum skaðabótalaga. Þessi hætta hefur ekki minnkað, hún hefur jafnvel aukist með kraftmeiri tækjum og verður ekki séð hvað kallar á breytingu varðandi þessi tilteknu tæki. Þá vaknar einnig spurningin, til hagsbóta fyrir hvern er lagabreytingin?

Ökumenn ótryggðir með öllu

Þessi breyting um áramót kann að láta lítið yfir sér, en felur í sér verulega afturför frá því sem núgildandi lög áskilja. Hún þýðir að frá og með áramótum eru ökumenn snjósleða, fjórhjóla og torfærumótorhjóla ótryggðir með öllu lendi þeir í slysi við notkun tækjanna. Hún þýðir einnig að allir sem leigja sér vélsleðaferð eða fjórhjólaferð eru ótryggðir sem ökumenn á tækjunum verði þeir fyrir slysi. Þetta gildir einnig um bændur, veiðimenn, hjálparsveitarmenn og aðra sem nota t.d. fjórhjól eða vélsleða.

Þetta þýðir á mannamáli að tekjutap vegna óvinnufærni, útlagður kostnaður vegna læknismeðferða og varanlegar afleiðingar slyssins fást ekki bættar.

Tryggingafélögin

Þrátt fyrir að þessi lagbreyting sé vond og illskiljanleg þá er sennilega öllu verri sú ákvörðun flestra tryggingafélaganna að ákveða að hætta að selja eigendum þessara tækja slysatryggingu ökumanns og eiganda frá og með næstu áramótum. Þetta þýðir einfaldlega að eigandi fjórhjóls eða vélsleða getur ekki keypt þá tryggingu sem áður var lögbundin, þrátt fyrir að hann óski eftir því og sé tilbúinn að greiða fyrir það iðgjald. Ég hvet því eigendur torfærutækja til að kanna hvernig þessu verður háttað hjá þeirra tryggingafélagi.

Þessi ákvörðun flestra tryggingafélaganna er vægast sagt sérkennileg því að þó svo að með lögunum sé felld niður skylda til að kaupa þessa tryggingu þá banna þau tryggingafélögunum ekki á nokkurn hátt að halda áfram að selja hana þeim sem vilja kaupa hana og greiða fyrir. Ég hélt í einfeldni minni að rekstur tryggingafélaga gengi út á að selja tryggingar, þeim sem vilja kaupa þær.

Flest tryggingafélögin benda nú hins vegar viðskiptavinum sínum á að þeir geti keypt sér almenna slysatryggingu sem er allt önnur vernd og lakari en slysatrygging ökumanns og eiganda var áður.

Með öðrum orðum þá er þessi lagabreyting og ákvörðun flestra tryggingafélaganna í kjölfarið mikil afturför frá því sem hefur verið um áratuga skeið í slysatryggingavernd til handa þeim sem eiga og nota torfærutæki.

Óðinn Elísson, lögmaður hjá Fulltingi

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 29. maí 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Á Ítalíu hafa þau mafíuna. Við höfum kynnst henni í gegnum Al Pacino og Robert D...

Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar
Skoðun 29. maí 2026

Matvælaframleiðsla í skugga síaukins kostnaðar

Á undanförnum árum hefur ítrekað verið gripið til umfangsmikilla „björgunarpakka...

Tölum íslensku um matvælaverð
Skoðun 29. maí 2026

Tölum íslensku um matvælaverð

Umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB hefur tekið sig upp aftur nú að l...

Hjörtun sem slá í Garðyrkjuskólanum
Skoðun 22. maí 2026

Hjörtun sem slá í Garðyrkjuskólanum

Nokkuð hefur borið á fréttum um dapurt ástand á hluta skólabygginga Garðyrkjuskó...

Fráleitar hugmyndir um einkavæðingu RARIK og Landsnets
Skoðun 22. maí 2026

Fráleitar hugmyndir um einkavæðingu RARIK og Landsnets

Upp á síðkastið hefur borið nokkuð á umræðu um einkavæðingu orkufyrirtækja. Sjál...

Notkun GPS tækja  í eftirleitum
Skoðun 22. maí 2026

Notkun GPS tækja í eftirleitum

Við eftirleitir fer oft mun meiri tími í að finna kindurnar en að koma þeim í að...

Ályktun um orkuskipti í landbúnaði
Skoðun 20. maí 2026

Ályktun um orkuskipti í landbúnaði

Í kjölfar fjölmenns vefþings um orkuskipti í landbúnaði þann 9. apríl síðastliði...

Framtíð sveitarstjórnarstigsins – ný sveitarstjórnarlög
Skoðun 15. maí 2026

Framtíð sveitarstjórnarstigsins – ný sveitarstjórnarlög

Nú á vorþingi mælti ég fyrir frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga. Megintilga...