Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Skilyrði fyrir samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH uppfyllt
Fréttir 21. júlí 2021

Skilyrði fyrir samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH uppfyllt

Höfundur: Vilmundur Hansen

Samkomulag um samruna Kjarnafæðis, Norðlenska matborðsins og SAH afurða var undirritað í júlí 2020. Samkeppniseftirlitið heimilaði samrunann með skilyrðum hinn 12. apríl síðastliðinn og síðan hafa stjórnir og stjórnendur félaganna ásamt ráðgjöfum unnið að því hörðum höndum að uppfylla skilyrðin til að fá heimild til að framkvæma samrunann.  Nú hafa þau skilyrði verið uppfyllt og geta samrunafélögin því hafið sameiningarferlið.

Í fréttatilkynningu vegna samkomulagsins segir að ljóst sé að rekstrarskilyrði félaganna hafa versnað verulega á liðnum árum og auk þess hafa áhrif samdráttar í kjölfar COVID-19 gert þá stöðu enn þyngri. 

Sameining félaganna og sú hagræðing sem stefnt er að með henni er nauðsynleg svo standa megi vörð um þá mikilvægu framleiðslu og þá þjónustu sem félögin veita bændum, viðskiptavinum og neytendum. Vonir standa til þess að samruni félaganna verði formlega frágenginn í lok sumars en eigendur samrunafélaganna hafa komið sér saman um að formaður stjórnar sameinaðs félags verði Helga Björk Eiríksdóttir og forsvarsmaður félagsins verði Ágúst Torfi Hauksson.

Eiður Gunnlaugsson, stjórnarformaður Kjarnafæðis: „Það hefur verið langur aðdragandi að þessari sameiningu og mikið gleðiefni að nú sé komin endanleg heimild frá Samkeppniseftirlitinu til að framkvæma samrunann. Ytra umhverfið hefur verið rekstri sem þessum þungt undanfarið og staða félaganna sem nú munu sameinast hefur veikst frá þeim tíma þegar skrifað var undir samkomulag um samruna fyrir rúmu ári síðan.  Verkefnið er því stærra nú en þegar lagt var af stað en ekki síður mikilvægt því hagsmunirnir eru miklir fyrir þau svæði sem félögin starfa á og fyrir þá aðila sem þau hafa veitt, og munu áfram veita framúrskarandi þjónustu.“

Rúnar Sigurpálsson, stjórnarformaður Norðlenska: „Það er afskaplega mikilvægt að endanleg niðurstaða liggi fyrir enda mikið í húfi fyrir bændur, starfsfólk og viðskiptavini Kjarnafæðis, Norðlenska og SAH. Nú hefst sameiningarvinnan fyrir alvöru og munum við nýta næstu vikur og mánuði til að  móta framtíðarsýn sameinaðs félags og fara í aðgerðir sem styrkja og bæta reksturinn til framtíðar. Markmiðið með sameiningunni er skýrt. Við höfum tækifæri til að búa til enn öflugra fyrirtæki í matvælaframleiðslu sem þjónustar á annað þúsund bændur, fjölbreytta flóru viðskiptavina og er með yfir 300 starfsmenn.“

Skylt efni: Norðlenska | Kjarnafæði | SAH

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...