Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Nýútskrifaðir járningarmenn ásamt aðalkennurum, rektor og deildarstjóra: Aftari röð frá vinstri: Friðbergur Hreggviðsson, Paavo Kovanen, Leó Hauksson, Magnús Ingi Másson, Kjartan Gunnar Jónsson og Hreinn Gunnar Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Aksel Vibe járningameistari, Hólmfríður Sveinsdóttir rektor, Víkingur Gunnarsson deildarstjóri og Kristján Elvar Gíslason járningameistari.
Nýútskrifaðir járningarmenn ásamt aðalkennurum, rektor og deildarstjóra: Aftari röð frá vinstri: Friðbergur Hreggviðsson, Paavo Kovanen, Leó Hauksson, Magnús Ingi Másson, Kjartan Gunnar Jónsson og Hreinn Gunnar Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Aksel Vibe járningameistari, Hólmfríður Sveinsdóttir rektor, Víkingur Gunnarsson deildarstjóri og Kristján Elvar Gíslason járningameistari.
Mynd / Aðsend
Fréttir 22. júní 2026

Sex útskrifaðir úr járninganámi

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fyrsta brautskráning úr nýju járninganámi við Háskólann á Hólum fór fram 23. maí síðastliðinn en námið, sem kallast sérhæft íslenskt járningapróf, er 30 eininga örnámsleið sem spannar eitt skólaár og er ætluð fyrir reynslumikla járningamenn.

Námið var blanda af kennslu í staðarlotum heima á Hólum og fjarnámi. Í náminu var lögð sérstök áhersla á gangtegundir íslenska hestsins og þá sérhæfingu í járningum sem þeim fylgja. Námið fór fram á ensku og miðast prófkröfur við réttindastaðla Evrópsku járningamannasamtakanna (EFFA). Aðalkennarar voru járningameistararnir Kristján Elvar Gíslason og Aksel Vibe frá Noregi. Víkingur Gunnarsson, deildarstjóri á Hólum, veit allt um námið.

Frábær hópur og inntökupróf í gangi

„Í náminu er fléttað saman verklegri kennslu og þjálfun í skeifnasmíði og járningum við fræðilega kennslu í líffræði hestsins, hreyfingafræði, heilsufræði og velferð hans auk járningafræðanna sjálfra. Hópurinn sem var að klára núna var frábær, reynslumiklir kappar sem voru mjög virkir og lögðu sitt af mörkum við frekari þróun námsins,“ segir Víkingur.

En hvernig er staðan, er skortur á járningarmönnum? „Í dag eru aðeins fáeinir menntaðir járningamenn starfandi hérlendis og eins og hér heima er víða erlendis hörgull á járningamönnum sem hafa þá sérhæfingu sem fylgir járningum íslenska hestsins. Markaðurinn fyrir sérhæfða járningamenn er því alþjóðlegur og mjög stór. Það var engin kona í útskriftarhópnum núna en það mun örugglega breytast í framtíðinni því við getum átt von á sömu þróun og í nágrannalöndunum en þar hefur konum fjölgað ört í þessari fagstétt,“ segir Víkingur.

Hann segir mikla aðsókn að náminu og nú séu inntöku- próf í gangi fyrir næsta skólaár. „Við þurfum að mæta vaxandi kröfum um heilbrigði og endingu reiðhesta með meiri þekkingu og verkfærni í hófhirðu og járningum. Námið við Háskólann á Hólum mótast af nánu samstarfi við atvinnugreinina og því fórum við af stað með þetta nám og munum á næstu árum þróa það enn frekar bæði með fleiri námsleiðum og rannsóknarstarfi.“

Mjög ánægður með kennsluna og námið

Hreinn Gunnar Guðmundsson var einn af þeim sem voru að útskrifast úr náminu. „Heilt yfir var ég mjög ánægður með kennsluna og námið. Helst hefði ég viljað hittast oftar á Hólum en við fórum þangað aðeins þrisvar í kennslu og svo í lokapróf. En þess á milli voru reglulegir teams-fundir og svo fyrirlestrar sem virkaði yfirleitt ágætlega. Ég mæli tvímælalaust með náminu, það er engin spurning að þetta nám er frábær viðbót við þá elju sem er í bransanum hér á landi en engu að síður fyrir íslenska hestinn í heild sinni þar sem þetta er alþjóðlegt nám, kennt á ensku og ætlað fólki alls staðar að úr heiminum. Bara að það vilji gera betur fyrir íslenska hestinn,“ segir Hreinn Gunnar og bætir við:

„Járningar hafa verið mín eina vinna síðustu 6-7 árin og í heildina hef ég járnað í tæp 20 ár. Það er hægt að hafa meira en nóg að gera í járningum. Ég flutti mig á Reykjanesið fyrir 2 árum og þá byrjaði ég að þurfa að keyra talsvert meira eftir vinnunni og vera jafnvel að heiman í eina eða tvær nætur til að túrarnir borguðu sig betur. Nú ætla ég að flytja til austurs í sumar, byrja upp á nýtt í Noregi þar sem ég er byrjaður á næsta námi í járningum og ætla að reyna að láta gott af mér leiða fyrir hönd hestsins okkar á meginlandinu,“ segir Hreinn Gunnar, alsæll með starf sitt sem járningamaður.

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna
Fréttir 7. ágúst 2026

Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunnar atvinnuveganna

Þrettán sóttu um starf forstjóra Stofununnar atvinnuveganna. Starfið var auglýst...

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera
Fréttir 7. ágúst 2026

18 milljóna króna styrkur vegna gagnavera

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa fengið veglegan Evrópustyrk vegna sjálfbær...

Moskítóflugur og mítlar
Fréttir 6. ágúst 2026

Moskítóflugur og mítlar

Vöktun á moskítóflugum, mítlum og lúsmýi heldur áfram í sumar. Almenningur er hv...

Keldnakirkja afhent Þjóðminjasafninu
Fréttir 6. ágúst 2026

Keldnakirkja afhent Þjóðminjasafninu

Keldnakirkja á Rangárvöllum hefur formlega verið afhent Þjóð minjasafni Íslands ...

Eimverk eykur starfsemi í Bjálmholti
Fréttir 6. ágúst 2026

Eimverk eykur starfsemi í Bjálmholti

Fyrirtækið Eimverk framleiðir viskí og er stórtækt í ræktun og kaupum á korni. S...

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega
Fréttir 5. ágúst 2026

Erlendir starfsmenn ráðnir sérstaklega

Sauðfjárslátrun hjá SS á Selfossi hefst formlega 8. september í haust og stendur...

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“
Fréttir 5. ágúst 2026

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“

Á dögunum fór fram hönnunarsamkeppni um lopapeysu kvenbóndans en árið 2026 er, s...

Samráðshópur um lífrænan úrgang
Fréttir 5. ágúst 2026

Samráðshópur um lífrænan úrgang

Umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra hefur skipað starfshóp um meðhöndlun lí...