Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Frá vinstri: Framleiðslustjórinn Marteinn Sigurðsson kjötiðnaðarmeistari og Róbert Hannesson sölustjóri.
Frá vinstri: Framleiðslustjórinn Marteinn Sigurðsson kjötiðnaðarmeistari og Róbert Hannesson sölustjóri.
Fréttir 25. október 2018

Sérverkað lambakjöt fyrir kokkana í Hörpu

Kokkarnir í Hörpu með Bjarna Gunnar Kristinsson í fararbroddi vilja auka virði lambakjötsins sem kröfuharðir gestir þeirra fá á sinn disk. Með það að markmiði hafa kokkarnir hafið samstarf við Kjötsmiðjuna um sérverkun á lambahryggjum með fulla meyrnun að markmiði.
 
Kjötiðnaðarmenn Kjöt­smiðjunnar fá lambið ferskt í heilum skrokkum í sláturtíðinni og taka hryggina frá fyrir Hörpu, láta standa á grind í kæli í eina viku, að því loknu eru hryggirnir úrbeinaðir og hryggvöðvanum pakkað. Hryggvöðvarnir fá síðan aðra viku í meyrnun áður en kokkarnir í Hörpu taka við vörunni og nýta ferska í sláturtíðinni auk þess sem hluti er frystur til síðari nota.
 
Kjötiðnaðarmenn Kjöt­smiðjunnar fá lambið ferskt í heilum skrokkum í sláturtíðinni og taka hryggina frá fyrir Hörpu, láta standa á grind í kæli í eina viku, að því loknu eru hryggirnir úrbeinaðir og hryggvöðvanum pakkað. Hryggvöðvarnir fá síðan aðra viku í meyrnun áður en kokkarnir í Hörpu taka við vörunni.
 
 Í samstarfi við Hörpu frá byrjun
 
Sigurður Gunnarsson er fram­kvæmdastjóri Kjötsmiðjunnar. 
„Kjötsmiðjan hefur átt í samstarfi við Hörpu frá byrjun, þar sem vörur hafa verið þróaðar í samstarfi við veitingamenn þar. Núna erum við að sérvinna lambahryggi eftir forskrift Bjarna Gunnars Kristinssonar, matreiðslumeistara í Hörpu.
 
Kjötsmiðjan var stofnuð árið 1990 og var fyrst til húsa að Smiðjuvegi 24 í Kópavogi, en þar ráku þeir feðgar Gunnar Snorrason og Sigurður Gunnarsson kjötvinnsluna Kjöt og álegg í tengslum við Kjörbúðina í Hólagarði. Árið 1996 var starfsemin flutt að Fosshálsi 27 í Reykjavík, þar sem kjötvinnslan er starfrækt í dag. 
 
Eins og í byrjun eru viðskipta­vinir aðallega veitingahús og hótel, einnig rekur fyrirtækið verslun með framleiðsluvörur sínar á sama stað.
 
Kjötsmiðjan sérhæfir sig í að þjónusta  veitingahús og hótel þar sem áhersla er lögð á gæði og góða þjónustu.
 
Finnum stóran mun á því að vinna með fullmeyrnað lambakjöt
 
Bjarni Gunnar Kristinsson, matreiðslumeistari í Hörpu, segir:
 
„Við vorum að fá fyrsta skammt úr haustslátrun 2018, sem við notum í veislur og á Kolabrautinni, og finnum stóran mun á því að vinna með fullmeyrnað lambakjöt. Það er einfaldlega ekki hægt að líkja þessu kjöti við annað lambakjöt, því áferðin er allt önnur við steikingu, með stökkri fitu og safaríkara. Margir líkja þessu lambi við villibráð eins og þekkist með hreindýr sem eru oft ótrúlega mjúk undir tönn. 
Þessi aðferð byrjaði á mínum tíma í Kokkalandsliðinu og tilraunum á Hótel Sögu þegar ég starfaði þar. Að mínu viti eru lambahryggirnir fullkomnir í þessa verkun vegna einangrunar sem kemur af fitunni og er þá lágmarks rýrnun úr vöðvunum við sjálfa eldunina. 
 
Vissulega verður ákveðin rýrnun við sjálfa verkunina og uppgufun en ég tel það vera réttlætanlega rýrnun þegar gæðin margfaldast á móti. 
 
Oft eru kokkar pirraðir að hella dýrmætum kjötsafa úr vacumpokum og ofnbökkum við eldun á kjöti sem hefur ekki fengið fulla meyrnun fyrir frystingu. Það réttlætir hærra verð fyrir betri vöru sem er tilbúin og fullmeyrnuð og hefur aukið virði fyrir mína kröfuhörðu gesti,“ segir Bjarni. 
Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...